Velkomin á heimasíðu Guðmundar og Sigrúnar Staðarbakka Hörgársveit

Fréttir júlí 2016

     31. júlí 2016

Í dag var Per Óskar skírður í Möðruvallakirkju af Magnúsi Gunnarssyni. Á myndinni eru auk prestsins, mamman Auður María með Per Óskar og guðmæðurnar Sólveig Elín og Perla Fanndal.

Per Óskar að glíma við pakka, sem hann fékk í dag.

Það var blítt veður í dag og á himni mátti sjá þessar skemmtilegu skýjaslæður.

     29. júlí 2016

Það er afmælisdagurinn hennar mömmu í dag og einnig brúðkaupsafmæli okkar Sigrúnar (9 ára). Eins og venja hefur verið komum við afkomendurnir þeirra mömmu og pabba og skyldulið saman. Eins og stundum áður gerðum við það í Arnarnesi og nutum þar góðs viðurgjörnings hjá þeim hjónum Jósavin og Eyglóu. Að þessu sinni var hópurinn óvenju stór, þar sem þau sem búa í Danmörku voru með núna. Þetta er ágætur siður og gerir það að verkum að flestir í þessum hópi hittist í það minnsta einu sinni á ári.
Þessa fallegu mynd tók ég svo á heimleiðinni.

     21. júlí 2016 

Í dag kom Auður María með 4 yngstu börnin sín þá bræðurna: Gauta Heimi og Ívar Franz og þau sem eru á myndinni: Ídu Guðrúnu og Per Óskar og svo má sjá Lubba vera að heilsa upp á gestina.
Hér eru þau amma og Per Óskar eitthvað að ræðast við, enda eru þau að sjást í fyrsta skipti í dag og Ída Guðrún er eins og fegurðardrottning á milli þeirra.

     17. júlí 2016

Við erum að verða búnir að ganga frá rúllunum úr þessum ágæta fyrrislætti, þar sem hey náðist vel verkað.

Hér eru rúllur komnar heim að hlöðu á flutningstækjunum.....
.....og hér er rúllan að koma inn........
......og Hákon Þór og Guðrún Margrét sjá um rúllan falli vel í stæðuna.
En úti leika vinirnir Kátur og Lubbi sér og æfa hlaup og bardagalist.

     10. júlí 2016

Villtur gróður þrífst vel á þessu góða sumri og allur fyrri slátturinn að verða kominn í rúllur.

 

 

Flettingar í dag: 6
Gestir í dag: 2
Flettingar í gær: 184
Gestir í gær: 15
Samtals flettingar: 62116
Samtals gestir: 16895
Tölur uppfærðar: 26.4.2024 04:09:47
clockhere

Staðarbakki

Nafn:

Guðmundur Skúlason & Sigrún Franzdóttir

Farsími:

846 1589/615 1949

Afmælisdagur:

21. okt. og 6. febr.

Heimilisfang:

Staðarbakki

Staðsetning:

Hörgársveit

Heimasími:

462 6756

Um:

Við erum bændur á Staðarbakka og búum þar með sauðfé.

Kennitala:

211051-4509

Bankanúmer:

1187-26-10528

Tenglar