Velkomin á heimasíðu Guðmundar og Sigrúnar Staðarbakka Hörgársveit

Fréttir apríl 2007

    30 apríl 2007

  Enn er sama blíðan sól og hiti, reyndar ekki alveg eins hlýtt og í gær, fór þó í 18°. Flestir farfuglarnir eru komnir og franir að fylla loftið af sínum ómfagra söng. Í kvöld komu þeir Gestur í Þríhyrningi og Bjarni á Möðruvöllum á stjórnarfund í Ferðafélaginu Hörg. Við vorum að leggja drög að atburðum félagsins í sumar, þeir verða nú að flestu leyti hefðbundnir, þar má nefna: Sólstöðuganga á Staðarhnjúk, Jónsmessunæturvaka í Baugaseli, Þorvaldsdalsskokk, pílagrímaganga, ganga um fólksvangin í Hrauni og trúlega eitthvað fleira þó það sé ekki endanlega ákveðið.

    29. apríl 2007

  Það var gríðarlega gott veður í dag, glaða sólskin og hiti komst í 20°. Maður sér grasið nánast gróa þannig að það er farið að grænka talsvert hér þótt það sé nú talsvert minna hér en neðar í sveitinni eins og venja er til.
  Gríma brá sér út í dag, vildi endilega fara út í garð og sóla sig, þetta var í fyrsta skipti sem hún fer út í frelsið síðan hún fannst seint í janúar eftir útileguna, sem hún mátti þola frá því í byrjun desember þegar hún strauk af Reykjavíkurflugvelli, af því að hún vildi ekki fá flugfar í vistina hér norður í landi.
 
Eftir hádegi fórum við í fermingarveislu Gunnþórunnar Elísabetar Helgadóttur á Syðri Bægisá, sem haldin var í Hlíðarbæ, þetta var fjölmenn og flott veisla. Svo fórum við í 45 ára afmæli hjá Birgittu Birnu. Og enduðum svo á því að heimsækja tengdamömmu í Hlíð. Þannig að við vorum nú komin heldur seint heim og ekki búin að gefa fyrr en kl. 22 í kvöld eftir langan og viðburða ríkan dag.

    26. apríl 2007

  Blíðu veður var í dag hlýtt og sól. Í kvöld var hér fjallskilanefndarfundur og voru auk nefndarinnar mættir á fundinn Guðmundur Sigvaldason sveitarstjóri og Helgi Steinsson oddviti. Við vorum einkum að semja starfsreglur fyrir fjallskilanefndina og fara yfir erindisbréf sem á að setja fyrir fjallskilanefnd. Þetta gekk allt ágætlega hjá okkur og verða þessi plögg væntanlega staðfest af sveitarstjórn fljótlega.

    25. apríl 2007

  Lóan er komin í "Heiðardalinn" heyrði hennar kæra dírrin dí í dag, aðrar raddir vorsins eru óðum að vakna. Það er aðeins að byrja að grænka og koma brum á tré.        

    24. apríl 2007

  Í dag fórum við á aðalfund BSE sem haldinn var í Hlíðarbæ. Þar var Andri Snær Magnason rithöfundur með erindi , sem bar yfirskriftina  "Hugleiðingar um hlunnindi" og fórum við aðallega til að hlýða á hann. Það er skemmst frá því að segja, að þetta var ekki fýluför, því hann fór alveg á kostum. Fjallaði hann um allt frá norðurljósunum til stórvirkjana og um mörk raunveruleikans og óraunveruleikans og teygjanleika þess hvað er hagkvæmt. Gerður var mjög góður rómur að erindi Andra Snæs.
  Á eftir skutumst við til Akureyrar í smá útréttingar.
   Í dag var vorblíða, sólarglætur og 10 gr. hiti.

    21. apríl 2007

  Þá er nú sumarið komið samkvæmt hinu skráða tímatali. En ekki veðurfarslega því í gærkveldi tók að snjóa og í morgun var kominn 15 - 20 cm. djúpur snjór og það snjóar enn núna undir hádegi. Ég veit ekki hverju þetta á að sæta, því ekki vantaði nú að frysi saman vetur og sumar, það var hörkugaddur þannig að það á að fara í hönd hlýtt og gott sumar. Eitt er það sem hefur ef til vill ruglað bæði náttúruna og þjóðtrúna, þar er um að ræða, að það sauð á húsbóndanum einmitt á þessum árstíðaskiptum, hann var sem sagt með tæplega 40° hita. Og nú bíður maður bara spenntur eftir því hvað vegur þyngra í tíðarfari sumarsins, frostið úti á þessari fyrstu sumarnótt eða hitastigið í húsbóndanum.

    19. apríl 2007

    Gleðilegt sumar og takk fyrir veturinn

    15. apríl 2006

  Í dag tókum við þátt í skoðunarferð Sauðfjárræktarfélags Skriðuhrepps að Ytri Bægisá II. Þar búa hjónin Stefán Lárus Karlsson og Elísabet Jóhanna Zitterbrat ásamt fjórum börnum sínum. Þau búa aðallega með sauðfé, um 330 kindur, en auk þess eru þau með sýnishorn af hinum ýmsu búfjártegundum t.d. svín, kanínu, hross og nautgripi. Aðal tilefni ferðarinnar var að skoða nýja gjafatækni fyrir kindurnar, sem þau komu upp í haust sem leið, þar sem rúllunum er komið fyrir í einskonar gjafagrindum, sem léttir mjög alla vinnu við að gefa heyið. Það var mjög gaman að skoða allan búskapinn hjá þeim, allt snyrtilegt og vel um gengið og búpeningurinn vel útlítandi. Að lokinni skoðun var öllum hópnum boðið inn og þáðum við þar hinar höfðinglegustu veitingar. Alls voru 14 í þessari heimsókn og voru allir sammála um að þetta hafi verið einstaklega vel heppnaður dagur.
  Veður var nokkuð gott sól annað slagið og sæmilega hlýtt.

    10. apríl 2007

  Þá eru nú páskarnir á enda runnir og páskagestirnir á bak og burt. Hjalti fór í dag á sínum fjallabíl til Egilsstaða, honum gekk ágætlega enda vegurinn alauður mest alla leiðina. Veðráttan var bara þokkalega góð um páskana, snjóaði reyndar á páskanótt eina 6-8 cm. en það tók nú upp um daginn í sólbráðinni. Í gærkveldi gerði vestan hvassviðri og slydda og síðan snjó él í nótt þannig að það var aðeins snjór í morgun, en í dag lægði og létti til. Við fórum nú lítið um páskana annað en til Guðlaugar tengdamömmu í Hlíð, fórum til hennar á föstudaginn langa og á annan í páskum, hún var bara nokkuð hress miðað við aldur og að vera nánast alveg blind sem er að sjálfsögðu mjög erfitt fyrir hana. Heyrðum aðeins í Sólveigu á annan, þau eru hress og kát Tanska hjúin og bíða í ofvæni eftir frumburðinum, sem á nú reyndar ekki að líta dagsins ljós fyrr en í byrjun september, þannig að þau hafa allt sumarið til að láta sig hlakka til.
  Stundir, sem ég hafði aflögu um páskana notaði ég, til að færa bókhaldið inn í dk Búbót fyrir fyrstu þrjá mánuði ársins. Ég þurfti líka að gera breytingar í bókhaldsforritinu, vegna breytinga á virðisaukaskatti úr 14% skattþrepi í 7%, sem tók gildi þann 1. mars.


Hjalti að leggja í hann, Lappi og Brussa horfa á hann saknaðaraugum.

     5. apríl 2007

  Í dag komu ráðunautarnir Jón Viðar Jónmundsson og Lárus Birgisson, að skoða hrúta til töku á sæðingastöð. Þeir tóku sýni úr fjórum hrútum til að kanna arfgerð þeirra gagnvart riðuveiki, því ekki má taka hrúta inn á sæðingastöð sem eru með áhættuarfgerð gagnvart henni. Hrútarnir sem þeir tóku úr eru: Þróttur 04-240, Baggalútur 04-244, Krókur 05-150 og Garður 05-254. Um þessa hrúta má fræðast annarsstaðar hér á síðunni t.d. má sjá hverjir eru foreldrar þeirra, hvernig þeir stiguðust lambshaustið og svo hvernig þeir hafa komið út úr skýrsluhaldinu.


Þróttur 04-240 haustið 2004, þá dæmdist 
hann besti lambhrúturinn á svæði
Búnaðarsambands Eyjafjarðar með 86,5 stig.

 
Við Sigrún og Hjalti fórum í Flögu í dag að gefa þar inn ormalyf, sprauta ærnar fyrir lambablóðsótt og svo kláruðum við að skipta um merki í þeim árgöngum sem ekki var búið að skipta í áður (árgangar 2002-2004) eru þá komin norsku merkin í allar ær á bænum.
 
Það hefur nú kólnað verulega frá hlýindunum sem verið hafa undanfarna daga, þannig að í dag var 3-5° frost og nokkuð bjart og gott veður.


    3. apríl 2007

  Við Sigrún fórum til Akureyrar að versla fyrir páskana. Í kvöld fór ég svo á aðalfund FSE sem haldinn var í Sveinbjarnargerði. Í upphafi fundarins kvaddi ég mér hljóðs og minntist séra Péturs Þórarinssonar sem lést þann 1. mars s.l. og fundarmenn risu úr sætum til að votta minningu hans virðingu sína. Frummælendur á fundinum voru Sigurgeir Sindri frá LS og Sigurður Jóhannesson frá sláturleyfishöfum. Þetta var ágætur fundur og vel sóttur, ég held að hafi verið á milli 40 og 50 manns á fundinum.
  Á fundinum voru veitt verðlaun BSE fyrir bestu lambhrútana á svæði BSE haustið 2006. Hæst stigaður var lambhrútur í eigu Sigurðar og Margrétar hér á Staðarbakka með 87,5 stig, þessi hrútur hefur nú fengið fullorðinsnúmerið 06-164 og heitir Vonar, hann er undan Hyl 01-883, frá Hesti.

    2. apríl 2007



Eins og sjá má er fjölgunarvon í fjölskyldunni, Sólveig Elin á sem sagt von á sér í byrjun september með sínum heittelskaða Tomi Tanska. Og er ástæða til að óska þeim til hamingju mað ávöxt ástarinnar!

   



 

Jæja, þá er Hrútaspilskvöldið afstaðið og er skemmst frá því að segja að það þótti heppnast einstaklega vel. Það var spilað á fjórum þriggja manna borðum og spilaðar voru 20 umferðir. Spilavistin hófst rétt um kl. 21 og var spilað til kl. 23, hvert spil tók um 4-5 mínútur og svo fer alltaf smá tími eftir hvert spil í, að hver skrái niður sinn hrútafjölda og skiptin á milli borðanna. Hrútakóngur kvöldsins var Guðmundur Sturluson á Þúfnavöllum, honum tókst að safna sér 396 hrútum í þessum 20 umferðum, í öðru og þriðja sæti urðu Sturla Eiðsson og Hákon Þór Tómasson, þessum þremur voru veitt verðlaun fyrir árangurinn. Auk þess fékk Sturla verðlaun fyrir flesta hrúta í einu spili eða umferð 37 hrúta. Ég var búinn að útbúa kort til að hver og einn gæti skráð sitt hrútasafn og á bakhlið þess voru svo spilareglurnar.
  Auk heimafólks (meðtaldir JBT og HÞT) mætti öll fjölskyldan á Þúfnavöllum og Viðar og Elínrós í Brakanda með dóttursoninn Viðar, sem spilaði reyndar ekki enda bara 7 ára. Alls vorum við því 14.
  Á eftir buðum við svo upp á kaffi og meðlæti, sem þær Sigrún og Magga voru búnar að útbúa og var setið við kaffi og spjall til kl. um 1 eftir miðnætti. Og var þá lokið þessu ánægjulega kvöldi, sem allir voru sammála um að hafi tekist það vel að ástæða væri til að hafa fleiri svona spilakvöld síðar.
  Sjá myndir frá kvöldinu á heimasíðu Sauðfjárræktarfélags Skriðuhrepps.

  Hjalti kom heim brunandi frá Egilsstöðum í kvöld á gamla Bronco og gekk glimrandi, hann er kominn í páskafrí.

    1. apríl 2007

  Í kvöld ætla félagar í Sauðfjárræktarfélagi Skriðuhrepps að koma saman hér á Staðarbakka og spila Hrútaspilið, meiningin er að spila þetta með svipuðu sniði og félagsvist, það verður gaman að sjá hvernig þetta gengur.
Veður er ágætt, suðvestan átt nokkuð hvöss framan af degi, en núna undir kvöld er orðið nánast kyrrt og 5° hiti.

Flettingar í dag: 41
Gestir í dag: 9
Flettingar í gær: 70
Gestir í gær: 22
Samtals flettingar: 58554
Samtals gestir: 15975
Tölur uppfærðar: 29.3.2024 15:15:22
clockhere

Staðarbakki

Nafn:

Guðmundur Skúlason & Sigrún Franzdóttir

Farsími:

846 1589/615 1949

Afmælisdagur:

21. okt. og 6. febr.

Heimilisfang:

Staðarbakki

Staðsetning:

Hörgársveit

Heimasími:

462 6756

Um:

Við erum bændur á Staðarbakka og búum þar með sauðfé.

Kennitala:

211051-4509

Bankanúmer:

1187-26-10528

Tenglar