Velkomin á heimasíðu Guðmundar og Sigrúnar Staðarbakka Hörgársveit

Fréttir júní 2014

29. júní 2014

Gísli og Ragnheiður komu í dag með myndarlegu börnin sín að heimsækja Sigrúnu frænku sína.

27. júní 2014

Flögukerlingin sveipuð dulúðri þokuslæðu.

24. júní 2014

Flöguærnar voru rúnar í gær og dag og þeim sleppt til fjalla. Að venju voru þær frelsinu fegnar.

22. júní 2014

Þá er nú loksins komið að því að garðurinn fái sína fegrun með gróðursetningu sumarblómanna.

 

...og svo lítur Sigrún yfir verkið með nokkurri velþóknun.

13. júní 2014

Þá er hún Sigrún mín útskrifuð af Kristnesi, eftir 13 mánaða endurhæfingu þar. Margt hefur áunnist á þessum tíma t.d. allt frá því að vera alveg lömuð hægramegin til þess að geta í dag gengið aðeins um innandyra með fjögurra arma staf og frá því að nærast eingönu í gegnum sondu til þess að borða nú allan mat á hefðbundinn hátt. En baráttan heldur áfram við að ná sem mestum styrk. Það kemur sjúkraþjálfari tvisvar í viku og svo ætlar Áslaug á Myrká að koma virku dagana og hjálpar Sigrúnu við daglegar athafnir. En mest og best hefur hin létta lund Sigrúnar minnar, ekki aðeins hjálpað henni í þessari ströngu báráttu heldur og líka mér og  öllum sem í kringum hana eru. Kjörorð hennar eru „ég veit, ég skal, ég get“. Áfram mín kæra!!!
Það tók síðasta snjóinn upp úr Kinninni fyrir neðan Berghúsin í dag. Vanalega er þetta nú sá skafl sem síðast lætur í minni pokann fyrir vorsins blíðu hér í nágrenni bæjarins. En núna en hann ekkert seinna að taka upp, því eins og sagði frá í gær var þá fyrst að taka upp af túninu. Hér kemur til að lítið var um vestlæga hríð eða skafrenning í vetur, en það er sú átt sem mest safnast fyrir í Kinninni.

12. júní 2014

Þá er loksins að taka upp síðustu skaflana af túninu. Það er hætt við að þessi tún verði missprottin.
Við Gestur erum að endurnýja dálítinn spotta af girðingunni meðfram veginum sunnan og ofan við Flögu. Á veginum er „pissubíll“ að bleyta veginn fyrir heflun, sem sannarlega var ekki vanþörf fyrir.

7. júní 2014

Ég brunaði með Sigrúnu niður fyrir fjárhús til þess að hún gæti tekið út ástandið á þeim kindum sem eftir eru þar. Hér er hún Bitta og lömbin hennar að sjúga. Allt í fínu standi að mati konunnar, sem missti alveg af því að sjá lömb á síðasta vori, þegar hún var að hefja sína vist í Kristnesi.
Það þarf líka að taka út blómagarðinn í leiðinni. Húsbóndinn ekki búinn að hafa manndóm í sér til að gróðursetja sumarblómin. En það kemur að því.

6. júní 2014

Í dag sótti ég Sigrúnu í Kristnes, en þar er hún búin að vera allan sauðburðinn eða síðan 11. maí. Þegar heim kom beið hennar pakki frá Danmörku, sem Auður hafði sent henni. Í pakkanum var þetta flotta armband, sem þær svilkonurnar eru að skoða á myndinni. Sigrún er mjög glöð að vera komin heim í Hvítasunnufrí. BRAVÓ.

5. júní 2014

Tommi kom með áburðinn fyrir okkur í dag, þannig að nú verður farið að bera á. Ekki er nú snjórinn alveg farinn af þeim túnum sem vanalega er byrjað á og víða eru þau mjög blaut enn þá.
Það er nú kominn grasþeli á þau tún sem komu fyrst undan snjó.
...og ullin sprettur á ánum og Gestur rúði nokkrar þeirra í dag.

4. júní 2014

Gott að kúra í veðurblíðunni....
...en mæðginunum Brussu og Trygg finnst betra að vera inni í hlöðu en að sólbaka sig úti...
...en forustukindurnar: Öðlingur og L-Lippa eru hálf ráðvillt með ný fengið frelsið, þar sem vegir liggja til allra átta. En stefnan verður örugglega vonbráðar tekin eftir fjárgötum aldanna í safaríka sumarhaga afréttarinnar.

 2. júní 2014

Það er búin að vera veðurblíða undanfarið, hlýtt og sólríkt, þannig að gróður tekur mjög vel við sér og hér má sjá fyrstu blómin útsprungin í garðinum okkar...
...og trén að laufgast, en mikill snjór undir Dranga gamla.
Flettingar í dag: 65
Gestir í dag: 21
Flettingar í gær: 34
Gestir í gær: 13
Samtals flettingar: 58508
Samtals gestir: 15965
Tölur uppfærðar: 28.3.2024 23:42:41
clockhere

Staðarbakki

Nafn:

Guðmundur Skúlason & Sigrún Franzdóttir

Farsími:

846 1589/615 1949

Afmælisdagur:

21. okt. og 6. febr.

Heimilisfang:

Staðarbakki

Staðsetning:

Hörgársveit

Heimasími:

462 6756

Um:

Við erum bændur á Staðarbakka og búum þar með sauðfé.

Kennitala:

211051-4509

Bankanúmer:

1187-26-10528

Tenglar