Velkomin á heimasíðu Guðmundar og Sigrúnar Staðarbakka Hörgársveit

Fréttir febr. 2009

    27. febr. 2009

Tómas, Anders og Nina  Á mánudaginn var komu frá Svíþjóð, Nina föðursystir Tómasar Leonards og sambýlismaður hennar Anders. Þau hafa dvalið í Ránargötunni hjá Sólveigu og Tómasi. Í dag komu þau svo öll hingað í heimsókn. Vegna þess að það er ekki fólksbílafæri í dalnum þá sótti ég þau niður á Mela og skilaði þeim þangað aftur. Reyndar var svo vegurinn ruddur í kvöld. Það var mjög gaman að fá þessa gesti þau vildu fara í fjárhúsin og kynna sér búskapinn. Við buðum þeim upp á lambalæri, sem þau töldu vera með besta kjöti sem þau hafi smakkað.











    23. febr. 2009

Ívar Franz Arnarsson fjögurra ára  Þá eru nú liðin fjögur ár síðan hann Ívar Franz fæddist í þennan heim á Sjúkrahúsinu á Akureyri. Þá átti fjölskyldan heima á Siglufirði, en er nú búsett í kongsins Kaupmannahöfn. Við fengum þessa ágætu mynd af Ívari senda þaðan í morgun. Á henni virðist hann vera sestur á skólabekk í einhverjum gamaldags skóla. Ef til vill hafa íslenskir stúdentar numið í þessum skóla fyrr á öldum, þegar þeir lögðu leið sína til Hafnar.
 
   Amma og afi senda þessum unga námsmanni sínar bestu afmæliskveðjur og óska honum Guðs blessunar um ókomin ár.

Ragna Hugrún 18 ára  Og svo er það þessi ungpía á myndinni hér til hliðar, sem er albúin þess að skella sér á ball á því herrans ári 1967. Búin að skella í sig rúllum eins og þá var órjúfanlegur undanfari þess að drífa sig á ball í "Sjallann" og kíkka á strákana.
  Við sendum okkar góðu vinkonu Rögnu Hugrúnu Kristjánsdóttur okkar innilegustu afmæliskveðju!
  Hvernig væri nú að við drifum okkur á ball fljótlega?
 











Vinkonurnar Sigrún og Ragna 



















  Undir kvöld batnaði veðrið, en það var búið að vera nokkuð dimmur hríðarhraglandi fram eftir degi. Svo var vegurinn hreinsaður þannig að við stóðumst ekki mátið og fórum í afmælisveislu til Rögnu í kvöld. Það var mjög gaman og hittum við þar síðstu gestina, en margir voru farnir sem höfðu komið til hennar í dag. Ég smellti meðfylgjandi mynd af þeim vinkonum, sem báðar hafa nú fyllt ákveðinn tug æviára sinna með stuttu millibili.
Hér eru nokkrar myndir sem teknar voru í afmælinu:  http://album.123.is/?aid=136729

   22. febr. 2009 konudagur

Sigrún með konudagsvöndinn !  Þá er konudagurinn upp runninn. Úti er smá él, en hver veit nema birti til með sól í heiði þegar kemur fram á daginn.
  Það er nú svo að óláns kreppan setur sitt mark á þennan dag eins og allt annað í þessu þjóðfélagi nú um stundir. En blessuð konan varð nú samt að fá sinn koss og að sjálfsögðu sinn vönd í tilefni dagsins. En nú þarf að gæta aðhalds og sparnaðar, því tók ég til þess ráðs, þegar við vorum að hára ánum í morgun, að gera smá vönd handa konunni úr heyi, já eða stráum. Maður kaupir jú strá dýrum dómi í blómabúðum, engu betri en þau sem maður á sjálfur. Vöndinn má svo hæglega endurnýta með því að fara með hann aftur í fjárhúsin að afloknum konudeginum og gefa ánum hann.
  Ef þetta er ekki hagsýni og að meira segja umhverfisvæn, þá veit ég ekki hvernig hún á að birtast.
  Byr Sparisjóður og Páll Óskar blikna nú hreinlega í samanborið við þetta. 



    17. febr. 2009

Sér fram Hörgárdal að Grjótárhnjúk  Þíðviðri hefur verið síðustu daga, þótt ekki hafi nú verið um neina asa hláku að ræða. Það er ýmislegt sem má veita eftirtekt í náttúrunni, eitt af því er mismunandi sýn til hennar eftir veðrabrigðum. Ef horft er hér fram dalinn að Grjótárhnjúk, sem gnæfir yfir fyrir miðjum dal, er glöggt merki um hláku eða vetrarhlýindi, þegar dökkur blámi einkennir skýin að baki hnjúksins, eins og sjá má á meðfylgjandi mynd, sem tekin var í gær.




Sér út Hörgárdal   Eins og sést á myndinni hér til hliðar er nánast snjólaust á láglendi hér neðar í dalnum. En það er gríðarleg hálka á veginum hérna fremst, kúpt glærasvell alveg út af köntum. Við Sigrún þurftum til Akureyrar í dag og bíllinn rann tvisvar út af hérna í ytri hæðinni og þurfti að draga hann upp á með dráttarvél. Þetta er með því svakalegasta sem ég hef séð, því svellin voru rennandi blaut og alls ekki stætt á þeim. Ég hafði samband við sveitarstjórann út af þessu ástandi og hann hafði svo samband við Vegagerðina og óskaði eftir að sent yrði tæki til að skrapa svellin. Vegagerðin sendi hefil fram að Myrkárbakka, en þar snéri hann við þótt nær svella laust væri þangað fram, en svellin þar fyrir framan. Það er nú svo að það er stefna og verklagsregla hjá Vegagerðinni að vegna þess að Staðarbakki er á enda þurfi eða eigi íbúar þar engan rétt á þjónustu af hennar hálfu, hvorki til að komast leiðar sinnar, eða eiga kost á aðstoð, ef alvarlegir hlutir gerast svo sem slys eða eldsvoði. Tekið skal fram að sveitarfélagið gerir það sem það getur til að halda þessum vegi ökufærum, eins og öðrum í sveitarfélaginu og fyrir það ber að þakka.


    13. febr. 2009

  Þegar ég var að fást við minn vírus, sem var að angra mig í desember, þurfti ég að fara nokkrar ferðir á Sjúkrahúsið á Akureyri, til að hægt væri að finna út hvað ylli mínum krankleika. Þar kom að konurnar í afgreiðslunni á sjúkrahúsinu, voru farnar að kenna svo í brjóst um mig fyrir að þurfa að greiða himinháa reikninga fyrir hvert skipti að þær bentu mér á að fara í umboð Sjúkratrygginga og fá þar endurgreiðslu því ég væri áreiðanlega kominn langt upp fyrir þá fjárhæð sem hver og einn ætti að greiða. Þetta gerði ég svo að afloknum áramótum og kom þá í ljós að ég átti rétt á nokkrum krónum í endurgreiðslu og hefði líka átt rétt á afsláttarkorti, ef þetta hefði ekki staðið svo óheppilega af sér að þessi útgjöld féllu til í lok ársins, en um áramót hefst nýtt kortatímabil í þessu kerfi. Hélt ég nú að þessu máli væri lokið, en svo reyndist nú ekki vera. Eins og sjá má á meðfylgjandi mynd barst mér bréf frá Sjúkratryggingum Íslands, dagsett 5. febrúar 2009. Innihald þess var eitt stykki Afsláttarkort, ekkert annað kom úr þessu umslagi. Á kortinu stendur: " Kort þetta veitir rétt til heilbrigðiþjónustu gegn lægra gjaldi í samræmi við gildandi reglugerðir á hverjum tíma"  Gott er nú það, ég hef þá misskilið þetta eitthvað kortið gildir þá bara um aldur og ævi manns, en gildistími þess miðast ekki bara við stakt almanaksár. En snú og eins og sjá má á bakhlið kortsins er gildistími þessa Afsláttarkorts 31.12.08. til 31.12.08. En var kortið ekki póstlagt, 05.02.09. ha!! Eftir stendur þá spurnigin: Hvernig átti ég að nýta mér þetta Afsláttarkort þennan eina dag sem það var í gildi?? Spyrja má: Er virkur sparnaður á réttum stöðum í KERFINU?? Og er ekki allt í lagi með þetta fólk sem afgreiðir hlutina á þennan hátt??

  Sjá meðfylgjandi gögn hér að neðan.
  Bréf frá Sjúkratryggingum Íslands





















Framhlið kortsBakhlið korts


     9. febr. 2009

Gestur og Tryggur í morgunkaffinu  Gestur afleysari hefur verið að hjálpa okkur undanfarið, vegna þess að ég hef verið að drepast, með hálsbólgu og kvef. Hann fór í kvöld þar sem ég er að verða sæmilega rólfær, enda að verða komið nóg af veikindum frá því í lok nóvember.








 


    6. febr. 2009!

                          Hún á afmæli í dag!!!!

Sigrún Ásthildur Franzdóttir

  Laust fyrir miðja síðustu öld fæddist hjónunum Franz Þorsteinssyni og Guðlaugu Sigurjónsdóttur þessi undurblíða hnáta, í snjóaþorpinu Dalvík og þar ól hún sína frumbernsku. Þaðan lá leiðin til höfuðstaðar norðurlands Akureyrar, þar sem æskan með til heyrandi skólagöngu og vinnu var tekin út alveg fram á manndómsár. En þá lá leiðin til Gautaborgar með eiginmanninum Þórhalli Pálssyni og frumburðinum Sólveigu Elínu, þar leit svo dóttirin Auður María dagsins ljós. Egilsstaðir varð svo næsti áfanginn á lífsins leið og þar kom örverpið Hjalti í heiminn. Hringnum var svo lokað þegar flutt var aftur til Akureyrar með börnin þrjú, eftir skilnað. Eftir stutta viðdvöl þar fannst í skjóli hárra fjalla framtíðar hreiður inn í miðjum Tröllaskaga, sem hefur dugað nokkuð vel og var staðfest með brúðkaupi fyrir einu og hálfu ári síðan.

  Ég bið afmælisbarninu Guðs blessunar um öll ókomin ár, um leið og ég þakka gæfuríka samfylgd, sem vonandi á eftir að endast okkur um alla framtíð.

  
  4. febr. 2009

Ærkjötsforréttur frá Fjallalambi  Á rölti mínu um Nettó, þegar konan er að gera innkaupin fyrir heimilið og ég að keyra innkaupakörfuna í humátt á eftir henni, stelst ég gjarnan að kjötkælunum til að kanna framboð og verðlagningu einkum á því, sem einu sinni voru bráðfjörug fjallalömb að háma í sig afréttargróðurinn, sem er undirstaðan að bragðgæðum þeirra, þegar þau hafa tekið á sig langt og á stundum strangt ferðalag alla leið á borð háttvirtra neytenda, jafnt hérlendis sem erlendis. Í einni af þessum snuður ferðum  mínum nú í nýliðnum janúarmánuði tók mitt hjarta gleðikipp, þegar ég rakst á að ég held nýhannaðan forrétt frá Fjallalambi á Kópaskeri og það úr ærkjöti, sem hefur verið nánast verðlaust árum saman.  Bændur hafa þóttst góðir hafi  þeir fengið að meðaltali svo sem 60 til 80 krónur.  Ég stóðst því ekki mátið að lauma í innkaupakörfuna tveimur bréfum, eiginlega bara í einskæru þakklætisskyni við starfsfólk Fjallalambs fyrir að koma ærkjötinu í svona söluvænar umbúðir og reyna að koma því í eitthvert verð. 
  En það er nú svo að jafnvel vel meint góðverk geta  á augabragði snúist í glópsku eða  jafnvel ótrúlegt axarskaft.  Þessari innkaupaferð lauk eins og öllum öðrum, við hjónakornin komum heim og ég fór að þrælast í gegnum póstinn, sem borist hafði þann daginn (ekkert smáverk það) á meðan konan gekk frá kaupstaðarvarninginum.   En nú dró allt í einu ský fyrir sólu eða upp úr þessari spurningu konunnar. "Hvað varst þú að kaupa?" Mig renndi strax í hug hvað væri og svara hróðugur yfir að hafa nú loksins látið eitthvað að viti í körfuna að eigin frumkvæði. "Forrétt".  En þá dynur alvaran yfir. "Er ekki allt í lagi með þig?". Heyrist nú frá konunni og ég heyri að henni er nokkuð niðri fyrir. Það er líklega best að tala varlega, ég manna mig þó upp í að segja. "Jú það held ég"  Og nú kemur skýringin á þessari yfirheyrslu. "Sástu ekki hvað þetta kostar?"  Ég veit alveg upp á mig sökina, annað en blessuð frúin mín, sem hefur mjög gott verðskyn og getur munað verð á hinu og þessu svo vikum og jafnvel mánuðum skiptir. Þannig að þegar hún rak framan í nefið á mér þennan "Forrétt" sem ég ætlaði að vera svo sniðugur að kaupa upp á mitt eindæmi og sýndi mér á greinargóðum miða allt um verð þessarar kostavöru. Lái henni hver sem vill eftir að hafa skoðað meðfylgjandi myndir þar sem má sjá allt um "Forréttinn" og þar með verðlagningu hans.
  En þótt mér finnist þetta opinbera það, að ég hafi ekkert fjármálavit eygi ég þó smá glætu í svartnættinu um að ég kunni að fá uppreisn æru. Næsta haust ætla ég semsé að leggja inn ærnar mínar fyrir himinhátt verð, en láta lambagrislingana lifa í staðinn, enda verðlausir hvort sem er miðað við mæðurnar.
  Hver veit nema ég fari nú loksins að græða fé...?!!!      

Verðlag!

3. febr. 2009

Flögukerling með skugga af Kistu og Dranga 





















  Það er bjart og fagurt veður í dag en nokkuð svalt, 12° frost um hádaginn. Í morgun þegar sólin var farin að gylla fjallatoppana bar fyrir augu þessa sérkennileg náttúrumynd, þar sem mátti sjá skugga af Dranga og Drangakistu í Flögukerlingunni. Þessi fjöll eru í svipaðri hæð yfir sjó, Flögukerlingin þó nokkru hærri. Nú styttist óðum í að sólin nái að skína hingað heim að bæ, en það á að gerast 6. febrúar ef Guð gefur þá heiðríkju.


    1. febr. 2009.

  emoticon Þá er komin til valda ný ríkisstjórn á landinu okkar góða. Vonandi tekst henni gæfulega að hefja fyrstu skrefin í endurreisn hins hrunda efnahagskerfis Íslands. Miklu skiptir allavega að út úr stjórnarráðinu eru nú horfnir á braut fulltrúar hinnar  vitfirrtu frjáls- og græðgishyggjuemoticon, sem ég hef haldið fram árum saman að ekki gæti leitt okkur annað en beint til glötunaremoticon , sem og gerðist í haust sem leið, reyndar með skelfilegri afleiðingum fyrir þjóðina, en svartsýnustu hugrenningar gátu séð fyrir.
  emoticon Vonandi að þjóðinni auðnist að kjósa aldrei yfir sig aðra eins vitfrringu.

Flettingar í dag: 83
Gestir í dag: 18
Flettingar í gær: 57
Gestir í gær: 14
Samtals flettingar: 61520
Samtals gestir: 16778
Tölur uppfærðar: 20.4.2024 13:03:29
clockhere

Staðarbakki

Nafn:

Guðmundur Skúlason & Sigrún Franzdóttir

Farsími:

846 1589/615 1949

Afmælisdagur:

21. okt. og 6. febr.

Heimilisfang:

Staðarbakki

Staðsetning:

Hörgársveit

Heimasími:

462 6756

Um:

Við erum bændur á Staðarbakka og búum þar með sauðfé.

Kennitala:

211051-4509

Bankanúmer:

1187-26-10528

Tenglar