Velkomin á heimasíðu Guðmundar og Sigrúnar Staðarbakka Hörgársveit

Fréttir mars 2010

    29. mars 2010

  Ég fór á fund í dag eftir hádegið í Eyþingsnefndinni um endurskoðun fjallskilasamþykktarinnar. Eftir að nefndin lauk sinni frumendurskoðun í lok febrúar voru drög að nýrri fjallskilasamþykkt send til umsagnar hjá viðkomandi sveitarfélögum. Á fundinn í dag voru svo boðaðir fulltrúar sveitarfélaganna til að kynna fyrir nefndinni ábendingar um það sem þeim þótti betur mega fara. Þetta var gagnlegur fundur og í framhaldi af honum mun nú nefndin gera sín lokadrög að nýrri fjallskilasamþykkt fyrir sveitarfélög við Eyjaförð og skila þeim svo til Eyþings.
  Hjalti kom með okkur heim, en hann kom frá Egilsstöðum á föstudagskvöldið og er búinn að vera hjá Sollu og Tómasi Leonard síðan.


    27. mars 2010

Kristjana, Hreinn Heiðmann og Jósavin Heiðmann  Í dag komu í heimsókn þau Kristjana og Jósavin (Brói) með soninn Hrein Heiðmann. Þau voru kát og hress. Ég tók nokkrar myndir flestar af því þegar þeir feðgar voru að leika sér  við þau Brussu og Trygg. Það má sjá þær hér.
Við Brói sömdum svo um að hann yrði hjá mér nokkra daga  í vor, þegar Flögusauðburðurinn stendur sem hæst, eins og hann hefur oft verið.




 
    24. mars 2010

Guðmundur á Þúfnavöllum og Margrét og Sigurður á Staðarbakka  Í kvöld fóru allir á bænum á aðalfund Sauðfjárræktarfélags Skriðuhrepps, sem haldinn var á Myrkárbakka að þessu sinni.
  Á fundinum fór Sigurður Þór Guðmundsson ráðunautur yfir og skýrði niðurstöður úr skýrsluhaldi fálagsmanna frá síðasta ári. Anna Guðrún Grétarsdóttir var með kynningu á fjarvis.is og hvatti félagana eindregið til að nota það í skýrsluhaldinu. 
 
  Þau hérna í norðurendanum Margrét og Sigurður, hlutu verðlaunabikar félagsins fyrir hæst stigaða lambhrút í félaginu haustið 2009. Hrútur þessi hefur nú fengið nafnið Flosi og er númer 09-194, stigaðist hann uppá 87,5 stig. Hann er undan Hyrni 08-183, sem er undan Króki 05-803. Móðir Flosa er Gulla 05-515. 
  Þetta mun hafa verið 1. aðalfundurinn í áratuga langri sögu félagsins, sem Ólafur G Vagnsson ráðunautur mætir ekki á og var þar skarð fyrir skyldi og ekki laust við að félugunum fyndist eitthvað vanta til að þetta gæti talist lögmætur fundur. 


    23. mars 2010

Einmánuður gengur í garð með hríðarkófi  Þá er Einmánuður genginn í garð, að þessu sinni með stórhríðarveðri, austan og norðaustan hvassviðri og hríðarkófi, þó ekki mikilli ofanhríð.
  Við vorum nú samt þrátt fyrir veðrið að flytja ær til slátrunar í dag. Fórum með þær 16 ær, sem ekki fannst lamb í við fósturtalninguna í fyrradag, niður í Ytri-Bægisá til Stefáns Lárusar, en þangað á svo að sækja þær ásamt hans geldu ám, á morgun frá SAH Afurðum á Blönduósi. Þetta er nú einn af kostunum við að láta fósturtelja að geta strax losað sig við þær ær, sem engu koma til með að skila næsta haust.
  Einnig getur maður strax tekið frá þrílemdar ær og fóðrað þær, það sem eftir er meðgöngunnar í samræmi við þeirra fósturfjölda. Einlemdar er svo einnig gott að fóðra sér og það fremur knappt síðasta hluta meðgöngunnar til að burðurinn verði ekki of stór.  

    21. mars 2010

Gunnar og Alex  Í dag var Gunnar í Sandfelli að fósturtelja hér. Hann var kominn um klukkan 8:30 í Flögu, en þar var byrjað að telja að vanda og búið var að telja um klukkan 12:30 í rúmum 600 ám og gemlingum. Útkoman á ánum var vel viðunandi eða 1,89 lömb eftir hverja á, en 1,95 lömb eftir á með lambi. En það ver ekki eins gott með gemlingana, þeir voru margir ýmist tómir eða með dauð eða dauðvona fóstur, þannig að það taldist ekki nema 0,52 lömb eftir hvern gemling, en í þeim sem voru með lifandi fóstur voru þau 1,2 á hvern gemling. 
  Það var mikið lið við talninguna þannig að það var 14 manns við hádegisverðarborðið að lokinni talningu. Stefán Lárus var hérna að hjálpa okkur og á eftir fórum við Gestur að aðstoða við talninguna hjá honum, sem kom ágætlega út t.d. var hann með 1,97 lömb eftir á með lambi. 

    20. mars 2010

Sameining Arnarneshrepps og Hörgárbyggðar samþykkt

Í dag fóru fram kosningar um sameiningu Arnarneshrepps og Hörgárbyggðar. Á kjörskrá í Arnarneshreppi voru 126, þar af kusu 100, sem er 79,4% kjörsókn. Á kjörskrá í Hörgárbyggð voru 309, þar af kusu 162, sem er 52,4% kjörsókn.

Í Arnarneshreppi greiddu 57 atkvæði (57%) með sameiningunni og 40 greiddu (40%) atkvæði gegn henni. Þrír seðlar voru auðir. Í Hörgárbyggð greiddu 149 atkvæði (92%) með sameiningunni og 12 greiddu (7%) atkvæði gegn henni. Einn seðill var auður.
Sameining sveitarfélaganna var því samþykkt í þeim báðum. Gert er ráð fyrir að sameiningin taki gildi 12. júní nk. 
    Frétt þessi er fengin af heimasíðu Hörgárbyggðar.

  Í dag kjósa íbúar  Arnarneshrepps og Hörgárbyggðar um sameiningu sveitarfélaganna. Verði sameining sveitarfélaganna samþykkt, er gert ráð fyrir að hún taki gildi strax í kjölfar sveitarstjórnarkosninganna 29. maí nk., nánar tiltekið sunnudaginn 12. júní þegar umboð nýrrar
hreppsnefndar byrjar. Af því leiðir að kosið yrði til hreppsnefndar í sameinuðu sveitarfélagi við sveitarstjórnarkosningarnar 29. maí nk. 
  Hlíðarbær
  Kjörfundur í Hörgárbyggð vegna kosningarinnar er í Hlíðarbæ, í dag 20. mars kl.10:00 - 20:00. 


    










Sigrún, Sturla, Guðmundur og Jóna  Við drifum okkur að kjósa klukkan að ganga sex. Þá var að sögn kjörstjórnar fremur dræm kjörsókn það sem af var eða tæp 50%.
  Eins og sjá má tók ég mynd af Sigrúnu, þegar hún var að skila atkvæðisseðlinum í kjörkassann og hafði kjörstjórnina með á myndinni. Hver veit nema þetta sé síðasta kjörstjórn Hörgárbyggðar?






15. mars 2010

Ég, Ólafur Vagnsson, Birgir Arason og Lilja Sverrisdóttir  Í kvöld fórum við Sigrún á aðalfund Félags sauðfjárbænda við Eyjafjörð, sem haldinn var í félagsheimili hestamanna, Funaborg á Melgerðismelum í Eyjafjarðarsveit.
  Auk þess að vera hefðbundinn aðalfundur var þess minnst að í ár eru 25 ár liðin frá stofnun félagsins. Lagt var meira í dagskrá fundarins en venja er með aðalfundi, auk þess sem hestamannafélagið sá um veislukaffi handa fundarmönnum.
  Erindi fluttu: Sigurður Eyþórsson framkvæmdastjóri Landssamtaka sauðfjárbænda, sem fór yfir stöðuna á kjötmarkaðnum.
  Auðjón Guðmundsson markaðsstjóri Kjarnafæðis, sem sagði frá fyrirtækinu og fór yfir helstu þætti framleiðslu þess og stöðu þess á markaðnum. 
  Þá talaði Logi A Guðjónsson annar eigandi prjónafyrirtækisins Glófa, hann sagði ögn frá sögu Glófa og framleiðsluvörum þess. Fram kom að gríðarleg eftirspurn hefur verið eftir vörum þess undanfarið, þær eru aðallega markaðssettar undir vörumerki VARMA. Þar má  einkum  nefna: sokka, vettlinga, húfur og trefla, einnig peysur og ýmsar annars konar flíkur.
  Undirritaður fór svo yfir aðdragandann að stofnun félagsins og frumbernskuár þess. Mér er þetta líklega manna best kunnugt, þar sem ég var formaður undirbúningsnefndar að stofnun þess og síðan fyrsti formaður félagsins. Að beiðni Birgis Arasonar formanns félagsins hef ég núna undanfarið unnið að gerð heimasíðu fyrir félagið. Birgir opnaði heimasíðuna á fundinum og  ég sýndi svo fundarmönnum hana á skjávarpa. Heimasíðuna afhenti ég svo félaginu að gjöf í tilefni af 25 ára afmæli þess.
   Í heild var þetta fróðlegur og ágætur fundur, sem um 40 manns sóttu.
Hér má sjá myndir frá fundinum.
Hér er hægt að fara inn á nýju heimasíðuna hjá FSE.


    14. mars. 2010

Óli kommi 1. maí 2009  Í dag bar hér ágæta gesti að garði. Þegar hin aldna kempa og heiðursmaður Óli kommi birtist hér með einkabílstjóra, sem er reyndar fyrrverandi bóndi hér í sveit Snorri Pálsson.
  Áttum við ágætt spjall yfir kaffibolla. Óli sagði sögur frá tíma þeim er hann var vitavörður og veðurathugunarmaður á Hornbjargsvita og síðar landvörður þar á sumrin. Einnig bar trúmál á góma og ekki gleymdum við að ræða pólitíkina og fjármálahrunið, en þar vorum við Óli innilega sammála um orsakir og afleiðingar. Hvorugur okkar er sem sagt mikill aðdáandi markaðskerfis frjálshyggjunnar, eða hinnar óheftu gróðafíknar. 
  Þess má svo geta að þótt Óli sé búinn að búa nokkuð lengi á Akureyri hefur hann ekki komið áður hér í fram Hörgárdalinn. Það var reyndar synd að það var svarta þoka þannig að skyggni var nánast ekkert.

    12. mars 2010

Gestur að snoðrýja  Í dag kláraði Gestur snoðrúninginn. Alls rúðum við 210 kindur, en fullorðnu hrútarnir og elstu ærnar fengu að halda sínu snoði að vanda. Það er nú alltaf nokkur léttir þegar búið er að hafa þetta verk af. En þrátt fyrir að rúningurinn sé erfitt og lýjandi verk létum við Gestur það ekki aftra okkur frá því að moka skít út úr hálfri kró á eftir og gáfum svo fénu. Gestur fór svo á félagsvist ungmennafélagsins Smárans í Hlíðarbæ. Á morgun bíður hans svo rúningur í Litla-Dunhaga. En ég fór hins vegar á stjórnarfund í Félagi sauðfjárbænda við Eyjafjörð, þar sem ég var að kynna ákveðið verkefni sem ég hef verið að vinna að fyrir félagið.
 
    10. mars 2010

Kristján Möller, Axel Grettisson og Helgi Steinsson  Í kvöld brugðum við Gestur okkur í Hlíðarbæ, þrátt fyrir að vera nokkuð þreyttir eftir að hafa verið að snoðrýja ær í dag auk hefðbundinna gegninga.
  Í Hlíðarbæ var kynningarfundur um sameiningu Hörgárbyggðar og Arnarneshrepps, sem íbúar þessara sveitarfélaga eiga að kjósa um þann 20. mars nk.
  Fundurinn í kvöld var einkum ætlaður fyrir íbúa Arnarneshrepps, en annað kvöld verður svo samsvarandi fundur fyrir íbúa Hörgárbyggðar. þetta var nú ekki alveg bundið og máttu menn ráða á hvorn fundinn þeir mættu eftir hentugleikum hvers og eins.
  Framsögu höfðu Kristján Möller ráðherra sveitarstjórnarmála og Björn Ingimarsson ráðgjafi nefndarinnar, sem annast undirbúning að því að hægt verði að kjósa um sameininguna. Í nefndinni sitja fyrir Arnarneshrepp: Axel Grettisson og Jón Þór Brynjarsson og fyrir Hörgárbyggð: Helgi Steinsson og Birna Jóhannesdóttir. Framkvæmdastjóri nefndarinnar er Guðmundur Sigvaldason sveitarstjóri Hörgárbyggðar.
  Að loknum framsögum voru pallborðsumræður, þar sem fundarmönnum gafst kostur á að spyrja og rökræða við frummælendur og nefndarfólkið. Þar komu bæði fram sjónarmið þeirra sem eru hlynntir sameiningunni og einnig ákveðnar efasemdaraddir. 
  Þetta var ágætur fundur þar sem um 70 manns nutu fróðleiks og gátu skiptst á skoðunum.
  Ekki má svo gleyma því að Kvenfélag Hörgdæla sá um kaffi og bakkelsi handa fundarfólki.
   Hér má sjá nokkrar myndir frá fundinum.

    Ég læt svo fylgja hér að neðan ávarp samstarfsnefndarinnar til íbúanna, sem birtist í kynningarbæklingi sem gefinn var út af nefndinni.

    Kæru sveitungar
  Á fundum hreppsnefnda Arnarneshrepps og Hörgárbyggðar í
nóvember 2009 var ákveðið að skoða hvort grundvöllur væri
fyrir sameiningu sveitarfélaganna tveggja og var kosin samstarfsnefnd
um málið, sbr. 90. gr. sveitarstjórnarlaga.
 
  Leitað var eftir samráði og samstarfi við Jöfnunarsjóð sveitarfélaga
og ráðuneyti sveitarstjórnarmála og áttu fulltrúar samstarfsnefndarinnar
fundi með fulltrúum þessara stofnana.
  Að aflokinni þessari vinnu er það mat samstarfsnefndarinnar að það
miklir hagsmunir séu í húfi að eðlilegt sé að leggja það í dóm íbúanna
hvort ekki beri að sameina sveitarfélögin. Það er mat nefndarinnar
að með sameiningu sveitarfélaganna megi bæta þjónustuna við
bæði íbúana og atvinnulífið umtalsvert.
  Slíku má ná fram með tímabundnum framlögum úr Jöfnunarsjóði
sveitarfélaga, með sparnaði sem hlýst af hagræðingu í yfirstjórn samfara
sameiningu og með varanlegri hækkun sem verður á ákveðnum
framlögum Jöfnunarsjóðs við sameiningu sveitarfélaganna.
  Þeim fjármunum sem þannig skapast yrði varið til að efla atvinnulífið,
auðga mannlífið og styrkja almenna þjónustu við íbúana.
  Einnig má ætla að sameinuðu sveitarfélagi gangi betur að koma
á nauðsynlegum samgöngubótum innan svæðisins auk þess sem
baráttan fyrir ýmsum almennum hagsmunamálum yrði líklegri til 
árangurs í öflugri heild.
  Samstarfið við önnur sveitarfélög á Eyjafjarðarsvæðinu
um ýmis mál, s.s. byggingaeftirlit, félagsog
skólaþjónustu, rekstur hafna og öldrunarmál, hefur
verið með ágætum og er ekki ástæða til að gera á
því breytingar við mögulega sameiningu sveitarfélaganna
tveggja.
  Samstarfsnefndin leggur það í dóm kjósenda hvort
sveitarfélögin verði sameinuð eða ekki. Það er mat
nefndarinnar
að með sameiningu skapist leiðir til
að efla og bæta samfélagið og því leggur hún til
að tillaga um sameiningu sveitarfélaganna verði
samþykkt. 
    Samstarfsnefndin
Hér má sjá bæklinginn í heild.

Sofið vært  
Þegar ég kom heim af fundinum um miðnættið var nú ekki mikið pláss fyrir hann afa í rúminu sínu, þar sem Tómas Leonard (sem kom í sveitina í dag) svaf ósköp vært  þversum í ,,holunni" hans afa síns.










    6. mars 2010

Fallin blóm  Eins og ég sagði hér á síðunni þann 5. janúar sl. er það mín skoðun að forsetinn hafi gert afdrifarík mistök þann dag. Í dag gengur svo hluti þjóðarinnar að kjörborðinu í framhaldi af gjörningi forsetans. Ég segi hluti því ég er einn af þeim fjölmörgu Íslendingum, sem ætla ekki að láta hafa sig að fíflum og greiða atkvæði í þjóðaratkvæðagreiðslu um milliríkjasamning sem almenningur hefur engar forsendur til að meta. Ég gekk hins vegar að kjörborðinu fyrir tæpu ári síðan og upp úr því komust hér til valda öfl, sem ég treysti best til að tosa okkur upp úr drulluflór íhaldsins og framsóknar sem við komumst í með áralöngu frjálshyggju- og einkavæðingarkjaftæði. Ég hefði hins vegar viljað greiða atkvæði í þjóðaratkvæðagreiðslu um mesta glæpaverk Íslandssögunnar Kárahnjúkavirkjun, en uppá það var ekki boðið.
  Ég treysti sem sagt þeim Steingrími og Jóhönnu fullkomlega til að leiða þetta óheilla Icesave-málið  til lykta, en minni á að það voru ekki þau sem skópu það. Það gerðist í valdatíð þeirra flokka sem fyrir fara nú Bjarni Benidiktsson og Sigmundur Davíð Gunnlaugsson. Það má aldrei gleymast!
Því er það svo að ég myndi aldrei treysta þeim einu sinni fyrir svo litlu að vísa mér á kamarinn!!!
  Það virðist samt svo að þjóðin ætli að fara að ráðleggingum þeirra í þessarri þjóðaratkvæðagreiðslu og þá verður bara að reyna að vinna úr því eins og öðrum óheillaverkum. Það er nóg óorðið sem útrásarglæpamennirnir í skjóli frjálshyggjunnar eru búnir að koma á Íslendinga, þótt íslenska þjóðin bætist ekki þar við með því að axla ekki ábyrgð á lélegu eftirliti með augljósum fjárglæframönnum.

 
    2. mars 2010

Hefill að ryðja veginn  Eins og vænta má þegar snjóatíð er, vill færð spillast og það hefur gerst núna undanfarið. Það hefur því þurft að ryðja veginn og í dag kom hefill og hreinsaði veginn, þannig að það er góð færð núna.
  Vegna umræðu undanfarið um ástand, sem fólk verður að búa við á Ströndum, það er í Djúpuvík og Trékyllisvík, verður að segja að það eru ekki aðeins mannréttindi að allir búi við eins öruggar samgöngur og kostur er, heldur er það ótvírætt öryggisatriði. Það getur hæglega kostað mannslíf að hafa allt ófært af þeirri ástæðu einni að sé verið að spara peninga. Á ekki að vera jafnrétti í þjónustu? Allavega eru allir jafnir fyrir skattheimtu, hvar sem þeir búa á landinu.
Flettingar í dag: 28
Gestir í dag: 12
Flettingar í gær: 34
Gestir í gær: 13
Samtals flettingar: 58471
Samtals gestir: 15956
Tölur uppfærðar: 28.3.2024 10:18:17
clockhere

Staðarbakki

Nafn:

Guðmundur Skúlason & Sigrún Franzdóttir

Farsími:

846 1589/615 1949

Afmælisdagur:

21. okt. og 6. febr.

Heimilisfang:

Staðarbakki

Staðsetning:

Hörgársveit

Heimasími:

462 6756

Um:

Við erum bændur á Staðarbakka og búum þar með sauðfé.

Kennitala:

211051-4509

Bankanúmer:

1187-26-10528

Tenglar