Velkomin á heimasíðu Guðmundar og Sigrúnar Staðarbakka Hörgársveit

Fréttir jan. 2009

    31. jan. 2009

  Í kvöld blóta Hörgdælingar þorrann að Melum. Við óskum sveitungum okkar góðrar skemmtunar og vonum að blótið fari fram með menningarbrag að vanda. Við verðum fjarri góðu gamni enda er ég aftur lagstur flatur í rúmið með pest.


    30. jan. 2009

  Þær frænkur Guðrún Margrét (1.jan.) og Margrét (27.jan.) urðu báðar 8 ára núna í janúar og að venju buðu þær okkur í afmælin sín. En vegna veikinda minna komumst við í hvorugt afmælið, en Margrét hélt upp á sitt afmæli í dag. Við sendum þeim frænkum okkar bestu afmælisóskir og látum fylgja með þessar fallegu myndir af þeim frá því í sumar sem leið, við sína uppáhalds iðju, sem er eitthvað að bardúsa við hrossin.

Margrét Tómasdóttir í ágúst 2008

Guðrún Margrét Steingrímsdóttir í ágúst 2008


    17. jan. 2009

  Seinnipartinn í dag fórum við í veislu til Birgittu Birnu, sem hún hélt í tilefni af útskrift sinni sem tölvunarfræðingur frá Háskólanum í Reykjavík. Námið hefur hún stundað undangengin misseri í fjarnámi meðfram vinnu sinni,  fyrst hjá fyrirtækinu Þekkingu og síðar núna undangengið ár hjá öðru, sem heitir Hugur Ax, bæði eru þau með starfsstöðvar á Akureyri. Auk þessa hefur hún svo hugsað um heimili og verið að ala upp dæturnar tvær. Á myndinni má sjá hana við veisluborðið og auk kræsinganna var tölvan að sjálfsögðu ekki höfð útundan.
  Á eftir áttum við svo ágætis kvöld hjá mæðginunum í Ránargötunni og var Tómas Leonard spilandi fjörugur langt fram á kvöld.

    14. jan. 2009

Verið að lesta ullina  Í dag kom ullarflutningabíllinn og gekk honum ágætlega, enda búið að ryðja veginn. Það fóru frá okkur 1.200 kg. Stefán Lárus kom og hjálpaði mér að lesta bílinn.
  Veður var stillt og vægt frost. Snjór á jörðu er rösklega fet.








   13. jan. 2009

Hjalti að leggja íann  Í dag fór hann Hjalti okkar til Egilsstaða. Hann er búinn að vera hjá okkur síðan 22. desember. Það er búið að vera einstaklega gaman að hafa hann allan þennan tíma og einnig hefur það komið sér mjög vel vegna veikindanna sem hafa hrjáð mig.
  Það er af veikindunum að frétta að þau eru heldur að láta undan síga, þótt vírusinn hafi nú ekki alveg yfirgefið mig og ég sé dálítið slappur enn þá.



     12. jan. 2009

Ullarflutningur  Í dag var búinn að boða komu sína hingað sá aðili á austanverðu norðurlandi, sem sér um að flytja ullina frá bændum til ullarþvottarstöðvarinnar á Blönduósi. En vegna snjóa og þess að ekki var búið að ryðja veginn hér í dalnum, frestaði hann komu sinni fram á miðvikudag. Við vorum búnir að hlaða ullinni á flutningatæki til að fara á móti honum hérna út að réttinni.






    8. jan. 2009

Lappi um jólin 2007

  Nú er hann Lappi minn allur og var grafinn í blómagarðinum í dag. Hann var úrvalshundur bæði sem fjárhundur og ekki síður sem félagi manns og vinur. Hvað fjárhundinn Lappa varðar var hann greindur og gerði margt vel t.d. að handsama brjálaðar fjallafálur, en það sem kann að hafa mátt að honum finna verður fyrst og fremst að skrifa á húsbónda hans, sem ekki var nógu góður að kenna honum. Já, við Lappi minn vorum búnir að fara saman margar ferðirnar hér um afréttina í blíðu og stríðu og það fylgdi því ávallt mikil öryggiskennd að hafa hann sér við hlið og vera þess fullviss að hann lét ekki kindur sleppa, sem yrðu á okkar vegi.

 Lappi kom hingað til okkar frá sínum fæðingarstað, Hæl í Flókadal í mars 1997, þriggja mánaða gamall. Samfylgdin er því orðin hartnær 12 ár og það er nú svo að fáa vini á sauðfjárbóndinn betri en hundinn sinn, enda samveran mikil við nánast öll bústörf, hvort sem það voru smalamennskur, girðingarvinna, skítmokstur, gegningar, heyskapur, sauðburður eða hvað annað. Alltaf var Lappi á næsta leiti að fylgjast með, þótt hann hafi nú vafalaust haft mismikinn áhuga á hinum ýmsu störfum, mestan þar sem beint var verið að fást við sauðkindina.

  Það er því svo, þegar ég kveð hann Lappa minn er ég ekki bara að kveðja hundinn minn, heldur einnig mjög góðan félaga og vin og svo er einnig um annað heimilisfólk t.d. voru Hjalti og Lappi miklir vinir.

  Lappi minn hafðu okkar bestu þökk fyrir samfylgdina.

  Myndir af Lappa:  http://album.123.is/?aid=131717

    7. jan. 2009

Sér norður Hörgárdal allt austur yfir Eyjafjörð til Svalbarðsstrandar  Ágætis tíð hefur verið undanfarið, fremur hægar sunnan eða suðvestan áttir og hiti tíðum frá frostmarki og uppí 10° hita. Það er því eins og sjá má á myndinni nánast snjólaust á láglendi og raunar allt uppí miðjar hlíðar. 
  Það hefur nú löngum þótt góðsviti að lítill sé skammdegisgaddurinn.






     1. jan. 2009

Megi góður Guð gefa Íslendingum farsæld  á nýbyrjuðu áriMáninn veður í skýjaslæðum
og visku til að vinna sig út úr vitfirringu undangenginna ára.
Flettingar í dag: 26
Gestir í dag: 12
Flettingar í gær: 34
Gestir í gær: 13
Samtals flettingar: 58469
Samtals gestir: 15956
Tölur uppfærðar: 28.3.2024 09:50:58
clockhere

Staðarbakki

Nafn:

Guðmundur Skúlason & Sigrún Franzdóttir

Farsími:

846 1589/615 1949

Afmælisdagur:

21. okt. og 6. febr.

Heimilisfang:

Staðarbakki

Staðsetning:

Hörgársveit

Heimasími:

462 6756

Um:

Við erum bændur á Staðarbakka og búum þar með sauðfé.

Kennitala:

211051-4509

Bankanúmer:

1187-26-10528

Tenglar