Velkomin á heimasíðu Guðmundar og Sigrúnar Staðarbakka Hörgársveit

Fréttir mars 2009

    31. mars 2009

Guðmundur formaður afhendir okkur Sigrúnu bikarinn  Í kvöld fórum við öll á bænum á aðalfund Sauðfjárræktarfélags Skriðuhrepps, sem haldinn var á Þúfnavöllum. Þetta var ágætur fundur með öllum hefðbundnum aðalfundarstörfum.
  Á fundinum var Ólafi G Vagnssyni ráðunaut, afhent heiðursskjal í þakklætisskyni fyrir vel unnin störf í þágu sauðfjárræktar félagsmanna á undanförnum átatugum, í skjalinu kemur fram að hann hafi verið gerður að heiðursfélaga í félaginu. Einnig var okkur Sigrúnu afhentur farandbikar félagsins, sem veittur er árlega fyrir hæst stigaða lambhrút í félaginu auk verðlaunapenings  til eignar. 
  Ég læt hér fylgja upplýsingar um hrútinn, sem settar voru inn á heimasíðuna þann 9. okt. sl. daginn sem lambhrútaskoðunin fór fram.
  "Lambhrútur númer 710 reyndist hæst stigaður, þegar upp var staðið. Hann er tvílembingur og vó 50 kg. Mældist með 110 mm legg. Ómtölur hans voru: 33 - 2,7 - 4,5. Stigunin var: 8,0 - 9,0 - 9,5 - 9,0 - 9,5 - 19,0 - 8,0 - 8,0 - 8,5, samtals 88,5 stig. Hann er undan Berki 07-175, sem er Krókssonur 05-150 og Dropu 06-674, en hún er undan Baggalút 04-244."

Minnt er á aðalfund Sauðfjárræktarfélags Skriðuhrepps!


  Aðalfundur Sauðfjárræktarfélags Skriðuhrepps, verður haldinn á Þúfnavöllum þann 31. mars nk. og hefst hann kl. 20:30. Auk venjulegra aðalfundarstarfa mun Sigurður Þór Guðmundsson ráðunautur, mæta á fundinn með niðurstöður úr skýrsluhaldi félagsmanna fyrir síðasta ár. Þá verður veittur bikar og verðlaunapeningur félagsins fyrir hæst stigaða lambhrút í félaginu haustið 2008.



    30. mars 2009

Sólarupprás kl. 11:30 























  Nú þegar geysar iðulaus stórhríð víðast um norðan og austanvert landið, er gaman að segja frá því að hér er blíðu veður og hefur svo verið frá því í gær, þegar veðrið tók að æsast víðast hvar. Ástæðan er há norðanátt, en fyrir henni erum við mjög vel varin hér inn í miðjum Tröllaskaganum, nánast má þá bóka hér logn og bjartviðri. En Tröllaskaginn á nú líka sínar skuggahliðar í orðsins fyllstu merkingu. Hér er sólin hulin bak við Háafjallið (Drangafjallið) langt fram eftir morgni og raunar allt fram yfir hádegi þar til vorjafndægur eru um garð gengin. Myndina hér að ofan tók ég við sólarupprás í morgun kl.11:30, þegar sólinni tókst loks að gægjast yfir fjallið, lögun þess er henni svo nokkuð hagstætt fyrir næstu daga þannig að sólargangur lengist nokkuð hratt. 
  En þrátt fyrir að þessi stórhríð hafi ekki náð inn í þennan afkima Töllaskagans er nú talsverður snjór hér, enda snjóað talsvert undanfarið. Þetta má sjá vel hér á myndinni að neðan þar sem sést að girðingar eru víða á kafi, svo aðeins sést í staurana.

Berghús byggð 1931


    29. mars 2009

Ær að hugsa um lífið
  Upp eru nú teknir nýjir búskaparhættir! Eins og greint var frá hér á síðunni í fyrradag var verið að fósturtelja í ánum, þá reyndust vera nokkrar geldar eins og gengur. Í dag fluttum við svo 10 geldar ær niður í Ytri Bægisá, en þangað á svo að sækja þær á morgun ásamt kindum af fleiri bæjum og flytja til slátrunar hjá SAH Afurðum á Blönduósi. Það er semsé komin sláturtíð.
Það er ekki öll vitleysan eins!




    27. mars 2009

Vinirnir Brussa og Tómas Leonard  Í fyrradag kom hann Tómas Leonard í heimsókn til afa og ömmu í sveitinni ásamt henni mömmu sinni. Þau eru búin að gista í tvær nætur, en fóru svo til Akureyrar aftur í dag. Tómasi fannst voða gaman að sjá öll dýrin, hundana Brussu og Trygg, kisuna hana Grímu og svo allar kindurnar. Ömmu og afa fannst líka fjarska gaman að hafa þau mæðginin í heimsókn.






Hákon, Magga, Gestur og Gunnar við fósturtalningu  Gunnar í Sandfellshaga kom í morgun að fósturtelja. Þetta er fjórða árið sem hann annast það hér á bæ. Byrjað var út í Flögu rétt upp úr 9 og var allt búið laust eftir hálf eitt. Alls var talið í 428 ám og 88 gemlingum. Eins og venja hefur verið var talið í öllu nema ánum á Berginu. Lömbin sem komu í ljós við þessa talningu reyndust vera 895, sem eru nokkru fleiri en í fyrra. Í hverri á voru að meðaltali 1,89 lömb, en ef geldar ær eru ekki taldar með var 1,94 lömb á hverja á. Meðaltalið á hvern gemling var 1,09 lömb, en ef aðeins eru taldir þeir lembdu var meðaltalið 1,32 lömb á gemling. Þetta verður nú bara að teljast viðunandi útkoma. Við fengum ágæta aðstoð við talninguna, Denni og Hákon komu úr bænum og svo komu líka Stefán Lárus og Gestur.  Hér má sjá nokkrar fleiri myndir af fósturtalningunni: http://album.123.is/?aid=142903

Fósturtalningartækið
  Hér má sjá Gunnar virða fyrir sér skjáinn á tækinu þar sem hann telur lömbin.

   22. mars 2009

Maja og Tommi  Í dag komu í heimsókn okkar ágætu vinir Erna María og Tómas. Þau notuðu góða veðrið í dag til að skreppa í sveitina. Komu líka færandi hendi með afmælisgjafir handa húsmóðurinni, meðal annars með Mackintosh´s bauk fullan af sælgæti sem sjá má hér á eldhúsborðinu. Þetta endist okkur hjónakornunum fram á sauðburð að maula upp úr þessari risadós. Tommi leit aðeins í fjárhúsin hjá mér og taldi fóðrunina vera þannig að góðar líkur væru á að féð spjaraði sig fram á græn grös.



Vetrarmynd
  Undanfarna daga hafa verið nokkur hlýindi þannig að hryggir á milli gilja eru orðnir nokkuð auðir þótt gilin sjálf séu nokkurn vegin sneisafull af snjó. Ef vel er rýnt í myndina hér að ofan má sjá nokkur snjóflóð sem fallið hafa  efst úr Háafjalli, eins og ætíð gerist þegar leysing er.

    21. mars 2009

Ásgerður Svandís og Ólafur Rafn  Við kláruðum verkin í dag með fyrra fallinu, vorum búin að öllu um kl. 14:30. Skrúbbuðum okkur svo upp og drifum okkur út í bíl og ókum á stað, sem leið liggur til Akureyrar. Við áttum reyndar visst erindi. Þannig er að nokkur undanfarin ár hef ég gert dagatal í tölvunni og gefið nánasta fólki okkar í jólagjafir. En vegna veikinda minna í desember tókst mér ekki að gera dagatölin fyrir jól að þessu sinni, en gerði þau svo á nýju ári. Og í dag ákváðum við svo að keyra út síðustu jólagjafirnar. Við byrjuðum á að fara í Möðrusíðuna, þar var enginn heima nema Haukur, sem tók við jólagjöfinni fyrir hönd fjölskyldunnar. Þá fórum við í Kringlumýri 7 til Ásgerðar systur og Ólafs mágs. Komum reyndar við í Ránargötunni og tókum Sólveigu og Tómas Leonard með okkur. Við fengum eiginlega afmælisveislu hjá Ásgerði systur, því hún á afmæli á morgun. Við skiluðum svo þeim mæðginunum í Ránargötunni heim og horfðum þar á fréttirnar og Spaugstofuna, nokkuð sem enginn má missa af. Daginn enduðum við svo í Melasíðunni hjá Borghildi og Friðriki og áttum hjá þeim ljúfa kvöldstund. Eins og sjá má var þetta því nokkuð langur en fjölbreyttur dagur, fyrst að sinna gegningunum og svo allar þessar heimsóknir og heim komum við svo laust fyrir miðmættið og var þá farið að kasta éli eftir hlýindi undanfarinna daga. 


    18. mars 2009

Snjómokstur  Nú er þó nokkur snjór í kringum hús þótt heilt yfir sé snjór ekki nema svona í maðallagi. Í dag var ég að moka snjó frá syðri hlöðunni, en upp úr næstu helgi þarf ég að setja þar inn rúllur, því það sem komst þar inn í fyrra sumar er á þrotum. Þessi snjómokstur í kringum hús á veturna tekur talsverðan tíma og kostar talsvert í olíu o.fl.








    16. mars 2009

  Við brugðum okkur í kaupstaðarferð í dag. Færðin er ágæt þótt það sé nú dálítil hálka hérna fram í dalnum. Auk hefðbundinna útréttinga heimsóttum við mæðginin í Ránargötunni, þau voru bara hin hressustu. Tómas er að jafna sig eftir að hafa verið með hlaupabólu.
  Í kvöld fór ég svo á stjórnarfund í Sauðfjárræktarfélagi Skriðuhrepps á Þúfnavöllum. Við vorum að undirbúa aðalfundinn, sem stefnt er á að halda um næstu mánaðarmót á Þúfnavöllum. Einnig um væntanlega heimsókn félaga í Sauðfjárræktarfélagi Hólasóknar og um að halda hrútaspilakvöld með svipuðu sniði og tvo síðustu vetur.


    13. mars 2009

Guðmundur og Gestur við rúninginn í dag  Þá er snoðrúningurinn að baki. Þetta árið sá Gestur Hauksson um rúninginn, byrðaði aðeins seinni partinn í fyrradag með því að hengja upp og rýja 30 ær,en rúði svo 90 í gær og 70 kindur í dag. Anton Berg frændi minn var að draga að og leggja í gær, en Guðmundur á Þúfnavöllum í dag. Þetta gekk ljómandi vel og í dag gátum við skemmt okkur við að karpa um pólitík, enda þeir Gestur og Guðmundur að fara að greiða atkvæði í prófkjörum um helgina, Guðmundur hjá Sjálfstæðisflokknum á morgun (laugardag) og Gestur hjá Framsóknarflokknum á sunnudaginn. En ég komminn er búinn að raða á listann hjá mínum flokki, enda þar skynsemin við völdin í þessu sem öðru og höfð póstkosning, þannig að hinn almenni þátttakandi greiddi atkvæði heima hjá sér, í stað þess að þeysast langar leiðir um hávetur þegar allra veðra er von.

Tryggur að fylgjast með rúningnum
   Það er nú svona að vera hvolpur að fylgjast með snoðrúningi í fyrsta sinn!

    11. mars 2009

Kominn með lepp fyrir augað  Þegar ég var að gefa ánum í Flögu um hádegið í dag fékk ég eitthvað úr heyinu upp í augað. Þrátt fyrir ítrekaða leit hér heima fannst það ekki. Þannig að í kvöld fórum við Sigrún inn á slysadeild og þar tókst að skola einhverri örðu út úr auganu. Ég fékk svo lepp fyrir augað sem ég á að vera með til morguns, svona til að hlífa því meðan það er að jafna sig.















    10. mars 2009

Birgir Arason formaður FSE í ræðustól  Í kvöld fór ég á aðalfund FSE, sem haldinn var á veitingastaðnum Friðriki V á Akureyri. Auk hefðbundinna aðalfundarstarfa fluttu erindi: Sigurður Jóhannesson formaður Landsambands slátureyfishafa, Sigurður Eyþórsson framkvæmdastjóri Landssamtaka sauðfjárbænda og svo hjónin Friðrik V og Arnrún veitingamenn á Friðriki V. Þetta voru allt fróðleg og yfirgripsmikil erindi. Á fundinum gekk ég úr stjórn félagsins þar sem ég hafði lokið 9 ára samfelldri stjórnarsetu, sem er hámark þess sem lög félagsins leyfa. Í stjórnina var kjörin Sigríður Bjarnadóttir í Hólsgerði. Hún mun vera önnur konan sem situr í aðalstjórn þessa félags, en fyrst var Brynja Þorsteinsdóttir.
Nokkrar myndir frá fundinum má sjá hér: http://album.123.is/?aid=139051


Grjótárhnjúkur í vetrardulúð
                       Vetrardulúð á fjöllum Tröllaskaga


    7. mars 2009

Margrét og Hreinn  Í dag var okkur boðið í áttræðisafmæli móðurbróður míns Hreins Heiðmanns fyrrverandi bónda á Auðnum í Öxnadal. Haldið var upp á afmælið í safnaðarheimili Glerárkirkju. Þar var saman kominn stór hópur afkomenda þeirra hjóna Hreins og Grétu auk náinna skyldmenna og vina. Þetta var hin skemmtilegasta dagsstund með söng, ljóðalestri og ræðuhöldum. Eftir að Hreinn hætti búskap hefur hann dundað sér dálítið við smíðar og er búinn að smíða margan fagran gripinn. Smíðar eru reyndar engin nýlunda hjá Hreini, hann byggði  jafnt íbúðarhús sem útihús á Auðnum í sinni búskapartíð og var þá jafnvígur á allt frá því að leggja grunn að húsi til lokafrágangs eins og málunar. Já, hann Hreinn frændi minn er hagleiks og snyrtimenni, sem hefur lítt tranað sér eður sínum verkum fram. Guð gefi þeim hjónum Hreini og Grétu góða heilsu, svo þau geti sem lengst sinnt sínum hugðarefnum og auðgað sitt nánasta umhverfi með nærveru sinni.


    4. mars 2009

Stjórn FSE Þórsteinn, Birgir, Sigríður, Stefán og Guðmundur  Eldsnemma í morgun var vegurinn ruddur. Þannig að ég átti auðvelt með að fara á stjórnarfund í Félagi sauðfjárbænda við Eyjafjörð (FSE) sem haldinn var í Búgarði. Við vorum að leggja lokahönd á það sem þarf að leggja fram og ræða á aðalfundi félagsins, sem halda á þann 10. mars nk.

  Þetta var síðasti stjórnarfundur í FSE sem ég sit, þar sem ég hef nú lokið 9 ára samfelldri stjórnarsetu og sem betur fer leyfa lög félagsins ekki lengri tíma þannig að maður þarf ekkert að vera að velta því fyrir sér hvort maður eigi að gefa kost á sér til endurkjörs.

  FSE var stofnað 1985, þannig að á næsta ári er það aldarfjórðungs gamalt. Nánast allan þennan tíma hef ég verið viðloðandi stjórn félagsins. Tvisvar gengið úr henni en verið kosinn aftur við fyrsta mögulegt tækifæri. Það eru því orðnir margir stjórnarfundirnir, sem ég er búinn að sitja auk allra aðalfunda þennan tíma, sem og nokkra aðalfundi Landssamtaka sauðfjárbænda sem fulltrúi félagsins.

  Ég ætla nú að gera nokkra grein fyrir aðdraganda og stofnun Fálags sauðfjárbænda við Eyjafjörð.

  Það var á útmánuðum 1985, sem sauðfjárbændur vítt og breitt af landinu fóru að spjalla saman um sín mál og var það mál manna að ástandið varðandi sauðfjárbúskap væri lítt viðunandi þannig að nauðsynlegt væri fyrir stéttina að stofna samtök sauðfjárbænda um allt land.

  Það var svo þann 11. apríl, sem boðað var til undirbúnings stofnfundar í Bændahöllinni í Reykjavík. Á þennan fund mætti stór hópur bænda víðsvegar að af landinu. Við Ólafur G Vagnsson mættum á þennan fund sem fulltrúar Eyfirðinga. Þarna var ákveðið að hver færi til síns heima, með það í farteskinu að stofna sauðfjárbændafélag í sínu heimahéraði og svo yrði boðað til stofnfundar landssamtaka þessara félaga síðsumars.

  Á aðalfundi Búnaðarsambands Eyjafjarðar (BSE) sem haldinn var dagana 22. og 23. apríl 1985, var svo kosin þriggja manna nefnd til að undirbúa og stofna félag sauðfjárbænda á starfssvæði sambandsins. Auk mín sem var settur formaður nefndarinnar, voru í nefndinni Sveinn Sigurbjörnsson í Ártúni og Friðrik Jónsson á Möðruvöllum, þá skildi Ólafur G Vagnsson ráðunautur BSE vera nefndinni til halds og trausts.

  Nefndin hélt sinn fyrsta fund í Búgarði að loknum sauðburði þann 7. júní. Þar var farið yfir ýmislegt varðandi þessa félagsstofnun til að mynda samin drög að lögum félagsins. Þann 10. júní kallaði svo stjórn BSE nefndina á sinn fund auk annarrar nefndar, sem á sama tíma vann að stofnun kúabændafélags á sama starfssvæði. Þarna var farið yfir málin og samræmt það sem ástæða þótti til og ákveðið að boða til stofnfundar beggja félaganna á sama stað og stund síðar í mánuðinum. Við Ólafur G komum svo saman þann 20. júní til að leggja lokahönd á þennan undirbúning stofnfundarins.

  Þann 24. júní var svo stofnfundurinn haldinn á Hótel KEA. Þar mætti fjöldi bænda og var félagsstofnunin samþykkt svo og lög fyrir félagið, þá var kosin 5 manna stjórn félagsins, auk þess 3 menn til að sækja stofnfund landssamtakanna. Á fundinum flutti erindi Eysteinn Sigurðsson bóndi á Arnarvatni í Mývatnssveit, sem fulltrúi þeirrar stjórnar sem kosin var á fundinum í Bændahöllinni til að vinna að stofnfundi landssamtaka sauðfjárbænda. Að loknum fundi okkar sauðfjárbænda stofnuðu svo kúabændur sitt félag.

  18. júlí kom stjórn Félags sauðfjárbænda við Eyjafjörð svo saman til síns fyrsta fundar. Fyrsta verk hennar var að skipta með sér verkum svo sem lög félagsins mæltu um. Þar var ég kjörinn formaður, Steinn Snorrason á Syðri Bægisá varaformaður, Friðrik Jónsson á Möðruvöllum gjaldkeri, Sigurgeir Hreinsson á Hríshóli ritari og Ármann Rögnvaldsson Syðrihaga meðstjórnandi. Við ræddum auk þess þarna starfið framundan.

  Það var svo dagana 17. og 18. ágúst 1985 sem stofnfundur Landssamtaka sauðfjárbænda (LS) var haldinn á Hvanneyri. Félag sauðfjárbænda við Eyjafjörð gerðist þar stofnfélag að  LS og sem fulltrúar FSE mættu á stofnfundinn á Hvanneyri, Friðrik á Möðruvöllum, Sigurgeir á Hríshóli og ég.

  Læt ég hér staðarnumið við þessa upprifjun af tilurð Félags sauðfjárbænda við Eyjafjörð, sem ég hef svo átt nána samleið með í rétt tæpan fjórðung aldar.

  Að endingu er mér ljúft að þakka þeim mörgu samferðamönnum, sem ég hef átt nána samferð með í þessu félagsstarfi.


    




 







   3. mars 2009

  Vonsku veður var framan af  degi vestan hvassviðri og dimm él, en upp úr hádegi lægði og létti til. Gestur H kom í heimsókn í dag og sagði hann að það væri orðið þungfært í dalnum. 

    2. mars 2009

  Guðmundur á Þúfnavöllum kom í heimsókn í kvöld. Þar sem færðin er tekin að spillast kom hann á sinni íturvöxnu dráttarvél. Eins og vanalega var margt spjallað t.d. tekist á um stjórnmálin, en þar erum við sem fyrr ósammála um flest og ekki miklar líkur á að það breytist. Enda eins og komið hefur fram hér á heimasíðunni áður, annar dimmrauður kommi en hinn helblátt íhald. Skiljum þó alltaf mjög sáttir, vitandi það báðir að hinum verður ekki haggað. Staðfastir menn!!!
Flettingar í dag: 269
Gestir í dag: 5
Flettingar í gær: 725
Gestir í gær: 63
Samtals flettingar: 66482
Samtals gestir: 17310
Tölur uppfærðar: 11.5.2024 05:17:01
clockhere

Staðarbakki

Nafn:

Guðmundur Skúlason & Sigrún Franzdóttir

Farsími:

846 1589/615 1949

Afmælisdagur:

21. okt. og 6. febr.

Heimilisfang:

Staðarbakki

Staðsetning:

Hörgársveit

Heimasími:

462 6756

Um:

Við erum bændur á Staðarbakka og búum þar með sauðfé.

Kennitala:

211051-4509

Bankanúmer:

1187-26-10528

Tenglar