Velkomin á heimasíðu Guðmundar og Sigrúnar Staðarbakka Hörgársveit

Fréttir nóv. 2014

28. nóv. 2014 

 Þá eru allar ærnar komnar á hús, eftir einstaklega góðan nóvember og ekki eftir neinu að bíða með að klára rúninginn. Myndin er af forystukindinni henni Lyppu  haustið 2012 þegar hún var lamb.

22. nóv. 2014

 Í dag fór Sauðfjárræktarfélag Skriðuhrepps í bráðskemmtilega skoðunarferð á Strandir. Lagt var af stað klukkan að ganga níu í björtu en fremur svölu veðri, sem hélst allan daginn. Um kl. 13 var svo komið í Sauðfjársetrið, þar sem beið okkar framúrskarandi lambasteik. Eftir að hafa matast og skoðað sig um í Sauðfjársetrinu var ekið að fyrsta sauðfjárbúinu sem skoðað var. Alls voru skoðuð 5 bú og var okkur allsstaðar tekið með miklum myndarskap og áttum við ánægjulegar samræður við ábúendur. Viðkomustaðirnir voru: Tröllatunga, Miðdalsgröf, Heydalsá (tvö bú) og Broddanes. Gaman var að skoða mismundi fjárhús og aðstöðu í þeim og svo að sjálfsögðu fallegar og vel ræktaðar kollóttar Strandakindur. Allir vorum við ferðalangarnir sammála um að þetta hefði verið góður dagur og í alla staði vel heppnuð ferð. Við ferðuðumst á bíl frá Bílaleigu Akureyrar og sá undirritaður um að aka henni.     Á myndinni er hópurinn á tröppum Sauðfjársetursins.

18. nóv. 2014

   Fagurt var til fjalla í ljósaskiptunum í dag.

17. nóv. 2014

 Sigrún fór í endurhæfingu í Kristnes 27. október og verður þar til 21. þ.m.      Á myndinni er hún í iðjuþjálfun á fullu við kortagerð, enda styttist í jólin.
 Það er gott fyrir ærnar að njóta veðurblíðunnar úti og stytta húsvistina. Tvo síðustu vetur voru þær búnar að vera á húsi tæpar þrjár vikur um þetta leiti nóvember.

15. nóv. 2014

 Það er blíða upp á hvern dag en sólin er orðin ansi lágti á loft og geislar hennar daufir og rauðleitir eins og mátti sjá í Myrkárfjallinu í dag. Hér er nú vika síðan sólina hætti að sjá hér á bæ. 
Flettingar í dag: 18
Gestir í dag: 3
Flettingar í gær: 88
Gestir í gær: 16
Samtals flettingar: 61772
Samtals gestir: 16813
Tölur uppfærðar: 23.4.2024 11:01:52
clockhere

Staðarbakki

Nafn:

Guðmundur Skúlason & Sigrún Franzdóttir

Farsími:

846 1589/615 1949

Afmælisdagur:

21. okt. og 6. febr.

Heimilisfang:

Staðarbakki

Staðsetning:

Hörgársveit

Heimasími:

462 6756

Um:

Við erum bændur á Staðarbakka og búum þar með sauðfé.

Kennitala:

211051-4509

Bankanúmer:

1187-26-10528

Tenglar