Velkomin á heimasíðu Guðmundar og Sigrúnar Staðarbakka Hörgársveit

Fréttir júlí 2012

    31. júlí 2012


  Enn ein mynd af Dranga. Tilefni hennar er þetta sérkennilega skýjafar sem er þessa dagana á kvöldin, sumir sem eru kunnugir rekís, segja að þetta minni helst á hann. Ef til vill heita þessi ský rekský, en mér er ekki kunnugt um það.

    30. júlí 2012


  Það má segja að í dag hafi hér verið sett heimsmet, sem ég er ekki viss um að slegið verði í bráð. Þetta gerði vinur minn Bjarni E Guðleifsson, þegar hann kleif sjálfann Hraundranga ásamt þeim Jóni Gauta fjallaleiðsögumanni og Halldóri úrsmið á Akureyri. Metið er í því fógið að Bjarni er án nokkurs efa lang elsti maður sem hefur klifið drangann, enda kominn á þann aldur að margur mundi nú segja að hann væri kominn af léttasta skeiði, orðinn sjötugur og góðum mánuði betur. Innilega til hamingju Bjarni minn með þetta frækilega afrek. Ég tók þessar myndir í dag, þegar þeir garparnir voru upp á toppnum. Á neðri myndinni má greina þá sem ljósa díla efst uppi.


    29. júlí 2012


 Að vanda komum við systkinin og skildulið saman í tilefni af afmæli mömmu, en í dag eru 97 ár síðan hún fæddist á Siglufirði. Það var því vel við hæfi að koma saman þar og snæða lambakjöt á hinum flotta veitingastað HANNES BOY.
  Áður en farið var í matinn skoðuðum við Sigrún, Sólveig, Tómas og þeir Gestur og Doddi, sem við buðum með, söfnin á Siglufirði það er: Þjóðlagasetrið, Úra og silfursafnið og Síldarminjasafnið. Þetta eru allt söfn sem gaman er að skoða. Það var ljómandi veður í dag, hlýtt og sól annað slagið.
Hér má sjá nokkrar myndir frá deginum.

    28. júlí 2012

Ásgeir Björn og Dagný Birta  Það er nú ekki sá árstími sem algengast er að maður fari í fermingarveislur. Engu að síður fórum við í eina slíka á Melum í dag. Áður kláruðum við að rúlla hérna suður túnið, það er sunnan við Stekkjarlæk, er þá allur fyrrislátturinn kominn í plast, fyrir utan varatúnið út í Flöguhólfum. 
  En aftur að fermingunni. Þessi myndarlegu systkini: Ásgeir Björn og Dagný Birta voru fermd í Laufáskirkju í dag og svo var boðið til fermingarveislu á Melum kl. 16. Þau hafa búið í Noregi í þó nokkur ár með foreldrum sínum: Erni og Birnu og þremur systkinum. Þetta var ljómandi veisla og gaman að fá að sjá íslensku/norsku fjölskylduna.



 
  
    24. júlí 2012

 
 











Þá er nú komið að því að ganga frá rúllunum. Byrjað var á því í morgun að setja inn í hlöðuna í Flögu um nýju dyrnar á henni og gekk það ljómandi vel. Á myndinni t.v. er Gestur að hlaða rúllum í útistæðuna og á þeirri t.h. er svo búið að verja hana fyrir hröfnunum með nót og dekkjum þar ofaná.


    20. júlí 2012

Ragna, Sigrún, Erna María og Gríma   Þær gellurnar Ragna Kristjáns og Erna María Eyland voru komnar í heimsókn, þegar ég kom örþreyttur inn að afloknu dagsverkinu. Ekki lítið hressandi það!












  
    17. júlí 2012   

Rúmalí  Það var ekki dónalegt að koma inn til frúarinnar seinnipartinn í dag, hún búin að baka þessar ljómandi Rúmbalí kökur. Ekki dónalegt með kaffinu næstu dagana hjá henni.











  
    16. júlí 2012

Sólsetur í Drangafjalli
Það er mikil kyrrð yfir sólsetrinu í Drangafjallinu, að afloknum góðum heyskapardegi.

    14. júlí 2012

  Heyskapurinn hefur gengið ljómandi vel það sem af er, enda brakandi þurrkur upp á hvern einasta dag síðan við byrjuðum. Það hefur því allt náðst í rúllur með ágætri verkun, en magnið er nú nokkru undir meðallagi, þó heldur meira en í fyrrasumar. Það sem dregur úr sprettu nú er að það hefur verið mjög þurrt í sumar, en þá er gott að hafa mikið af túnum sem ræktuð eru úr uppþurrkuðum mýrum, eins og hér er. Við njótum þess líka að það gerði hér mikla rigningu þann 26. maí og aftur núna í upphafi þessa mánaðar. Þessara rigninga naut hér fremst í dalnum en lítið sem ekkert hér neðar í sveitinni, enda skilst mér að þar sé miklu meiri uppskerubrestur af völdum þurrks og bruna á túnum.
  
    13. júlí 2012

Kornelía, Samuel, Sari og Jonas  Í dag komu Sólveig og Tómas Leonard, með fjölskyldu sem er í viku heimsókn hjá þeim, frá Svíþjóð. Þau eru yfir sig hrifin af landinu, enda einstaklega heppin með veðrið, sól og blíða upp á hvern dag.
  
   










 12. júlí 2012

Tryggur í ljómandi skapiMorgunkaffi í Flögu
 











  Tveir að njóta sumarblíðunnar og slappa af í morgunkaffinu frá slættinum í Flögu. 

    9. júlí 2012

Hjalti að spila á fiðluna  Hjalti sendi okkur þessa flottu mynd af sér, þar sem hann er að spila á fiðluna sína fyrir gesti á ,,Skógardeginum mikla" sem haldinn var hátíðlegur þann 23. júní sl.
   



























   8. júlí 2012

Stefán, Sigurður og Gestur  Smíðin á hlöðustafninum gengur ágætlega og var honum að mestu lokað í dag, þannig að það klárast væntanlega á morgun.














 

  Ég hef stundum sett hér inn þegar síðasta snjóinn tekur upp hér í nágrenni bæjarins. Þessi mynd, sem tekin var í dag sýnir snjódíl hér suður og niður í árgilinu, sem svo var horfinn í kvöld. Það má nú segja að það sé alveg tímabært, þar sem þetta er ekki í nema um 300m fjarlægð frá bænum. Annar staður sem snjó tekur seint upp í álíka fjarlægð frá bænum, er í Kinninni sunnan við Ásgerðarstaði. Þar tók upp núna þann 13. júní. Sá er munur á þessum stöðum að sólar nýtur vel í Kinninni en mun síður niður í gilinu.   

    5. júlí 2012

Byrjað að slá  Byrjað var að slá í dag. Sprettan mætti nú vera betri, hún hefur þó tekið verulega við sér eftir að fór að rigna og það talsvert þann 2. júli og hafa verið skúrir þangað til í dag, en þá hafði nánast ekki komið dropi úr lofti síðan 26. maí. Ofan á það bætist svo að það var klakalaus jörð í vor, þannig að hún þornaði óvenju snemma.









  Það þokast líka áfram með stafninn í Flögu. Grindin komin upp og önnur hurðin á lamirnar.















    1. júlí 2012

Við Flöguhlöðu  Við byrjuðum í gær, að grafa frá og brjóta niður suðurstafninn á fjárhúshlöðunni í Flögu. Hann var alveg að gefa sig undan jarðveginum, sem var hátt upp á hann að utanverðu. Það er svo meiningin að setja þarna vélgengar dyr, þannig að hægt sé  að keyra rúllurnar þarna beint inn. Þær hafa fram að þessu verið settar inn í gegnum skúrinn vestur úr hlöðunni, sem hafa verið svolitlar krókaleiðir. Það á því að slá tvær flugur þarna í einu höggi, byggja upp traustan stafn og um leið að fá góða leið með rúllur inn í hlöðuna. Stefán Lárus smiður á Ytri Bægisá og Gestur ætla að hjálpa okkur við endurbygginguna. 
 
Flettingar í dag: 76
Gestir í dag: 17
Flettingar í gær: 57
Gestir í gær: 14
Samtals flettingar: 61513
Samtals gestir: 16777
Tölur uppfærðar: 20.4.2024 10:43:53
clockhere

Staðarbakki

Nafn:

Guðmundur Skúlason & Sigrún Franzdóttir

Farsími:

846 1589/615 1949

Afmælisdagur:

21. okt. og 6. febr.

Heimilisfang:

Staðarbakki

Staðsetning:

Hörgársveit

Heimasími:

462 6756

Um:

Við erum bændur á Staðarbakka og búum þar með sauðfé.

Kennitala:

211051-4509

Bankanúmer:

1187-26-10528

Tenglar