Velkomin á heimasíðu Guðmundar og Sigrúnar Staðarbakka Hörgársveit

Fréttir ágúst 2016

     29. ágúst 2016

Þá er sjálfur Höfuðdagurinn upprunninn og spáir ekki illa fyrir haustinu. Þetta er búið að vera mikið gróðursumar og enn er allt í fullri sprettu, enda ekki komið frostkul nokkra nótt.

     26. ágúst 2016

 
Þá er maður orðinn fjórhjólseigandi. Keypti það hjá Jötun vélum í fyrradag og Gestur kom svo með það í gær á kerru. Vonandi að það reynist mér vel og létti mér störfin í ellinni.

     15. ágúst 2016

Fallega sveitin mín í síðsumarskvöldsólinni, þegar skuggar fjallanna eru farnir að teygja sig niður í dalinn og skemmtiferðaskip líður út fjörðinn eftir skoðunarferðir farþeganna í dag.
Síðar sama kvöld ekki minni fegurð.

     14. ágúst 2016

Við Sigrún fórum á frænkuhitting í kaffihúsinu í Listigarðinum. Hér má sjá þær frænkurnar Sigríði Hlíðar og Sigrúnu.....

....og hér eru þær með það af skylduliði sínu sem viðstatt var.

     5. ágúst 2016

Við fengum góða heimsókn í dag þegar þau kæru hjón Halldór og Kristbjörg á Egilsstöðum komu og það var margt spjallað.

     4. ágúst 2016

Það var nokkuð sérkennilegt veður í dag. Það mætti ef til vill lýsa því helst þannig að það hafi verið sólskinsskúrir. En það sem var nú allra óvenjulegast var þessi regnbogi, sem var nú eiginlega enginn regnbogi, heldur var þetta litasamsetning regnboga, sem lá alveg niður í dalbotninum.

     2. ágúst 2016

Í dag fórum við Sigrún með Katrínu og Emil til Siglufjarðar. Katrín hafði gaman af að koma þangað og sjá allar breytingarnar, sem þar hafa orðið á þeim 9 árum sem eru liðin frá því að hún átti heima þar og Emil að fá að sjá hvar Katrín átti heima.

 

 

Flettingar í dag: 456
Gestir í dag: 96
Flettingar í gær: 716
Gestir í gær: 31
Samtals flettingar: 68325
Samtals gestir: 17480
Tölur uppfærðar: 14.5.2024 20:30:56
clockhere

Staðarbakki

Nafn:

Guðmundur Skúlason & Sigrún Franzdóttir

Farsími:

846 1589/615 1949

Afmælisdagur:

21. okt. og 6. febr.

Heimilisfang:

Staðarbakki

Staðsetning:

Hörgársveit

Heimasími:

462 6756

Um:

Við erum bændur á Staðarbakka og búum þar með sauðfé.

Kennitala:

211051-4509

Bankanúmer:

1187-26-10528

Tenglar