Velkomin á heimasíðu Guðmundar og Sigrúnar Staðarbakka Hörgársveit

Fréttir sept. 2011

    30. sept. 2011

Lambhrútaskoðun í gangi  Í morgun var hér lambhrútaskoðun. Skoðaðir voru röskir fjörutíu heimahrútar og svo kom Stefán Lárus á Ytri-Bægisá með nokkra hrúta, þannig að alls voru þetta 50 hrútar. Ari Teitsson sá um að stiga og Þórður Sigurjónsson ómmældi. Þótt Ari sé nú enginn nýgræðinur í hrútaþukli hefur hann aldrei annast það hér á bæ fyrr.
Það reyndust þó nokkrir líklegir kynbótagripir í þessum hópi. Meðalheildareinkunn allra hrútanna var rétt um 84 stig, sem verður nú að teljast ágætt. Þrír þeir hæst dæmdu fengu 86,5 stig og átti ég þá alla. Því miður vannst ekki tími til að mynda þá til að setja myndir að þeim hér inn, en það verður vonandi bætt úr því síðar.
Eins og vera ber var verslað með hrúta, Stefán Lárus keypti tvo af mér og ég fékk tvo hjá honum í staðinn.


    28. sept. 2011

Álitlegir hrútar frá Skriðu  Við bræður fórum í gærkveldi niður í Skriðu til að kaupa okkur lambhrúta hjá Þór bónda, sem er mikill áhugamaður um sauðfjárrækt og hefur þar náð ágætum árangri. Endirinn varð sá að við komum með heim fjóra fallega lambhrúta, sem ég tók svo mynd af í morgun til að setja hér inn. Það var nú kannski ekki alveg á stefnuskránni hjá okkur að kaupa tvo dökkleita hrúta, en okkur leist svo vel á þessa, að við stóðumst ekki þá freistni að kaupa þá. Gráni og botni eru af þekktu föðurkyni, undan Grábotna sæðingahrút, sem er einn allra öflugasti alhliða kynbótahrútur landsins nú um stundir. Þeir hvítu eru ekki af eins þekktum ættum, en eru engu að síður ágætir hrútar. 

    27. sept. 2011

Skólplögn endurnýuð  Mörg er búmannsraunin. Það sannaðist kvöldið fyrir 1. göngurnar, þegar frárennslið frá eld- og þvottahúsi stýflaðist. Þannig að síðan hefur þurft að nota gömlu aðferðina og þvo allt upp í vaskafati. Það hefur einfaldlega verið svo mikið að gera að ekki hefur gefist tími til að lagfæra þetta fyrr en í dag. Jósavin frændi minn Arason kom í dag til að brjóta upp svelginn í þvottahúsinu og tengja þaðan nýja lögn við aðal frárennslið frá húsinu. Við vorum reyndar búnir að grafa skurðinn áður, sem var nokkurt rask, þar sem þurfti að fara í gegnum blómagarðinn. Það er mikið gott að þetta er frá og kunnum við Jósavin bestu þakkir fyrir aðstoðina.

Haustlitamynd  
  Til að bæta fyrir hina myndina úr blómagarðinum set ég hér inn fallega haustlitamynd frá öðru sjónarhorni.

    26. sept. 2011

Sigurður og Margrét  Í dag er Sigurður bróðir sjötugur. Hann ber nú aldurinn vel eins og sjá má á meðfylgjandi mynd, sem tekin var af þeim hjónunum áður en þau fóru að heiman í morgun í afmælisferð. Við Sigrún óskum þeim innilega til hamingju með daginn og vonum að þau eigi góðan dag. Um leið þökkum við samferðina í gegnum árin á föðurleifð okkar bræðra.






    25. sept. 2011

Sólveig Elín  Aðrar göngur voru gengnar í gær og dag. Það var þoka og úrfelli í gærmorgun en stytti upp og birti til um hádegið og var þá farið á Flögudalinn og hér upp í Ásgerðarstaðaheiðina. Aðeins fannst ein tvílemd ær, sem reyndist vera frá Myrkárbakka. Í dag var hins vegar ágætis veður og var þá farið hér fram Hörgárdalinn. Alls fundust þar 23 kindur 11 héðan af bæ og 12 úr Akrahreppi. Ekki var vitað til þess að neitt yrði eftir, þannig að afréttin á að vera orðin fjárlaus.
  Á myndinni er Sólveig Elín að koma galvösk úr göngunum í dag en Króna fylgist með og sjá má á henni að hún hefur mátt ösla einhverja drullukeldu í göngunum.  

    21. sept. 2011

Mynd úr safni frá 2009 E-skrokkur  Við Sigrún og Gestur fórum á Blönduós í dag. Þar var slátrað 655 kindum héðan hjá SAH Afurðum ehf. Gestur átti 52 af þeim.
  Útkoman var bara nokkuð góð. Þunginn var einhver sá mesti sem hér hefur verið, eða 17,36 kg. og þess má geta að það fór um ¾ af þeim lömbum sem slátrað verður í haust. Holdfyllingarflokkunin var nokkru lakari en 2010 eða 10,26, sem er svipað og árin 2008 og 2009. Fituflokkunartalan fer hins vegar alltaf heldur niður á við og var nú 7,56. Í heildina er ég bara mjög sáttur við útkomuna einkum þegar haft er í huga hvað vorið var erfitt, en það hefur svo komið til góða á móti að það var að gróa til fjalla alveg fram að göngum.
  Til gamans má svo geta þess að þegar verið var að setja sláturlömbin á fjárbílinn í gær, spurði Birgir Ingþórsson bílstjóri mig að því hvað meðalvigtin yrði hjá okkur í þessarri slátrun núna og ég svaraði að bragði, "hún verður 17,35 kg.". Verst að ég skyldi ekki geta haft þetta alveg rétt!


    19. sept. 2011

Úr Þverárrétt í dag  Að venju fór ég í Þverárétt að aðstoða Stefán Lárus við sundurdráttinn í dag. Veður var milt en fremur þungbúið. 
  Á myndinni má sjá bakhlutann á Jóni "bónda" og Guðmund í Garðshorni, Þórarin á Frostastöðum, Þorstein á Þverá, Aðalstein á Auðnum réttarstjóra og Stefán Lárus á Ytri-Bægisá 2 að vippa sér yfir réttarvegginn.







    18. sept. 2011

Úr Hallormsstaðaskógi  Hjalti er að vinna í Hallormsstaðaskógi, við skógarhögg þessa dagana og sendi okkur ábendingu um frétt og myndir af skógarhöggsmönnunum, sem má sjá hér.











 
    17. sept. 2011

Unnið við vigtun 2009  Eins og venja hefur verið hér um langt árabil voru öll lömbin vegin á laugardeginum eftir fyrstu réttir og það er jú dagurinn í dag. Að vanda var mikið og harðsnúið lið við vigtunina, enda voru það hátt í 900 lömb sem runnu í gegnum tölvuvogina í dag. Meðalvigtin reyndist svo vera 39,3 kg. sem er um ½ kg. meira en í fyrra, sem var þó með því allra besta sem hér hefur verið. Þetta er því í góðu samræmi við það sem mér sýndist í göngunum að lömb myndu vera með allra besta móti í haust.



    16. sept. 2011

Réttarstörfin í dag  Það var réttað hér í Staðarbakkarétt í morgun kl.10. Veður var ágætt þótt það liti nú ekki út fyrir það fyrst í morgun, en þá ringdi dálítið en stytti svo upp áður en réttað var. Réttarstörfin gengu fljótt og vel fyrir sig. Í þessari rétt hefur ekki verið dregin kind í mörg ár, heldur er gangur meðfram dilkunum sem féð rennur eftir og er svo hleypt inn í þann dilk sem það á heima í. Þetta léttir gríðarlega réttarstörfin, þannig að maður fer ekki úrvinda frá þeim, einkum þar sem margt fé er.
  Hér má sjá fleiri myndir frá deginum.

    15. sept. 2011

Í gangnalok 14.sept.2011  Þá eru 1. göngur að baki. Í gær var smalað að austanverðu í björtu en svölu verðri. Smölunin gekk vel en fremur hægt, fé var óvenju ofarlega og einnig heldur latrækt. Það voru því þreyttir menn og skepnur sem komu til byggða rétt upp úr klukkan 6 í gærkveldi. Það má líka sjá á myndinni þar sem þeir bændur: Stefán á Ytri-Bægisá og Þór í Skriðu hafa tyllt sér niður rétt áður en komið er að, á meðan móðar kindurnar kasta mæðinni.
  Í dag var svo gengið hér að vestanverðu og Flögudalurinn. Það var hlýrra og þungbúnara en í gær og mátti finna einn og einn rigningardropa. Smölunin gekk þokkalega líkt og í gær og var safnið komið í réttarhólfið laust fyrir klukkan 7 í kvöld. Það hefur verið vel mannað báða dagana. Þar sem uppistaðan er þrautvanir göngugarpar og harðjaxlar, með nokkrum nýliðum inn á milli. Og svo erum það við þessir eldri í hópnum, sem höfum jú reynsluna, en það er farið að draga nokkuð af okkur í eltingaleik við ljónstyggar fjallafálur. Þá er ótalin sú nýbreytni sem reynd var í dag, þegar tveir garpar á torfæruhjólum sáu að mestu um að smala Ásgerðarstaðaheiðina. Þeim gekk það ljómandi vel og þetta létti líka mikið á efstu mönnum sem koma fótgangandi, bæði framan Hörgárdal og Flögudal. 
  Það er svo að sjá að dilkar komi ljómandi fallegir af fjalli þetta haustið.
  Hér má sjá myndir frá göngunum í gær.
         
    13. sept. 2011

Gestur að gera við girðingu  Þá eru nú göngurnar að austanverðu á morgun. Gangnamennirnir byrjuðu að koma í kvöld sumir um langan veg alla leið úr höfuðborginni, en flestir mæta nú bara í fyrramálið.
  Það er búið að vera í mörgu að snúast núna síðustu dagana fyrir göngur að venju. Það þarf að gera við girðingar og réttir auk annars sem þarf að vera tilbúið fyrir fjárrag komandi daga. Eins og sjá má er ekki alltaf auðvelt að gera við girðingarnar, sem eru nánast í kafi í grasi þannig að það sést rétt ofan á girðingarstaurana.
  Eru annars ekki alltaf einhverjir að væla um að sauðkindin sé að éta upp landið? Bendir grasið á myndinni til þess??? 


    11. sept. 2011

Guðrún, Jónas, ég, Sólveig og Tómas  Í dag komu Guðrún og Jónas í heimsókn, en þau eru núna í viku með orlofsíbúð á Akureyri, Sólveig og Tómas Leonard komu með þeim. Það var borðað lambakjöt og margt spjallað og þau sýndu okkur myndir úr Kanandaferð, sem þau fóru í núna í sumar.








     
    9. sept. 2011

Guðlaug Jóhanna Sigurjónsdóttir
  Í dag eru liðin 100 ár frá fæðingu tengdamömmu minnar Guðlaugar Jóhönnu Sigurjónsdóttur. 
  Guðlaugu kynntist ég ekki fyrr en hún var komin yfir áttrætt, en finnst samt að ég hafi þekkt hana alla ævi, enda mætti margur þótt af færri æviárum státi vera sæll með það andlega og líkamlega atgervi sem hún hafði allt fram á tíræðisaldur. Það var alltaf jafn yndælt að koma til Guðlaugar í Ránargötuna oft var hún búin að gera pönnukökur og "dekka" þegar við Sigrún komum til hennar eftir bæjarstúss, áður en við lögðum í hann í sveitina. Ég minnist þess líka þegar ég sótti hana til að koma í sveitina, alltaf var hún tilbúin þegar ég kom að sækja hana, upp á búin sem hefðarkona, alsæl með að heimsækja dótturina fram í Hörgárdalinn. Síðustu árin hennar Guðlaugar heima í Ránargötunni vorum við hjá henni á aðfangadagskvöld, bæði henni og okkur til ánægju. Eitt sinn bar þó aðeins út af, sem henni þótti við okkur um stund.  Þannig var að við höfðum eitthvað orðið sein til við seinni gegningarnar og var klukkan orðin rétt rúmlega 6 þegar við komum í Ránargötuna. Þá sagði Guðlaug um leið og hún opnaði fyrir okkur  "því komið þið svona seint það er orðið heilagt". Það var ekki nema eðlilegt að jafn trúaðri konu eins og Guðlaug var mislíkaði þetta við okkur að trufla helgidóminn, þegar jólin ganga í garð.
 Það sá ekki á Guðlaugu að lífið var henni ekki alltaf dans á rósum. Móður sína missti hún í frumbernsku, þá varð hún fyrir þeirri sáru reynslu að fæða andvana dóttur, manninn sinn hann Franz, sem hún unni mikið missti hún aðeins 46 ára gömul og sum systkini hennar létust langt um aldur fram. Allan þennan harm bar hún í hljóði og flíkaði ekki sínum sáru tilfinningum framan í heiminn. Það var ekki hennar stíll. Líklega var samt það áfall, sem Guðlaug átti verst með að sætta sig við, var þegar sjónin sveik hana nánast alveg undir það síðasta og hún þurfti af þeim sökum að yfirgega húsið sitt í Ránargötunni, sem hún bað Guð að blessa í hvert skipti sem hún yfirgaf það hvort heldur sem var um lengri eð skemmri tíma og eyða síðkvöldi ævinnar á dvalarheimili aldraðra. Það átti hún mjög erfitt að sætta sig við.  
  Myndin hér að ofan var tekin af Guðlaugu við jarðarför Antons bróður hennar 2003, en hann náði háum aldri eins og hún. Er ekki erfitt að sjá, að þetta sé 92 ára gömul kona á myndinni?
  Ég trúi að Guðlaug tengdamamma mín dvelji nú sæl og sátt í heimkynnum Guðs og Jesúss, sem hún setti allt sitt traust á, þegar gatan var grýtt á hennar jarðnesku braut.
  Blessuð sé minning þín tengdamamma mín. 

Jónas Ragnar, Sigrún Ásthildur og Ívar Baldvin
    Börn Guðlaugar: Jónas, Sigrún og Ívar við leiði foreldra sinna í dag.


    Hér hafa tengdabörnin og fleira skyldulið bæst í hópinn t.f.v. Sigríður kona Ívars, Guðrún kona Jónasar, Ívar, Sigrún, hjónin Þórhildur og Guðjón, sem er systursonur Guðlaugar, Jónas og undirritaður og fyrir framan er langömmustrákurinn hann Tómas Leonard og ömmustelpan hún Slóveig Elín.

Gauti Heimir Arnarsson  Það eiga fleiri afmæli í dag því þessi drengur hann Gauti Heimir kom í heiminn á afmælisdaginn hennar langömmu sinnar þegar hún varð 89 ára. 
  Við amma og afi á Staðarbakka sendum þér Gauti okkar innilega afmæliskveðju til Slagelse í ríki Margrétar Þórhildar og biðjum Guð að gæta þín.
  Myndin var tekin í júní 2007, á henni má sjá Gauta í sínum uppáhalds leik, þegar hann kom í heimsókn til afa og ömmu í sveitina. Þá var gjarnan sagt við fyrsta tækifæri "afi eigum við að koma í skrímsla leik.
 

    8. sept. 2011

Drangi í haustskrúða
  Já, það er greinilega komið haust þannig að Drangi gamli var orðinn grár, sem virðulegur öldungur í morgun. Það var hálfgert illviðri í gær og snjóaði meira þar sem há norðanátt nær sér á strik, en hér var þokkalegasta veður, smá rigningarhraglandi en nánast logn. 

    6. sept. 2011

Ein af rúllustæðum sumarsins  Þá er heyskap endanlega lokið þetta sumarið. Við slógum það síðasta í gær og rúlluðum svo strax á eftir. Það var nokkurn veginn þurrt á þegar ég byrjaði að slá en gerði svo skúr þannig að það er rigningarvatn í þessum síðustu rúllum, svona til að undirstrika hvað þetta er búið að vera leiðinda sumar að mestu leyti. Hey hafa þó náðst að mestu án þess að hrekjast, þökk sé rúllutækninni.
  Við tókum svo rúllurnar í morgun og bættum þeim við eina af stæðum sumarsins og gengum frá henni með viðeigandi yfirbreiðslu til að verjast hrafninum.
  

    4. sept. 2011

Tómas Leonard  Það er nóg um veisluhöldin þessa dagana. Við fórum í fjögurra ára afmæli Tómasar Leonards, sem reyndar á nú ekki afmæli fyrr en á morgun, en það var haldið upp á það í Helgamagra í dag. Þetta var þessi fína veisla hjá honum og á myndinni er hann með fjarstírðan bíl frá mömmu sinni og flugvél frá Hreinsa.
Hér má sjá örfáar myndir úr afmæli Tómasar.














Birgitta, Bob, Sólveig Lilja og Kristín Lára  Á eftir fórum við svo í átta ára afmæli Sólveigar Lilju, sem átti að vísu afmæli í gær en hélt upp það í dag. 
Á myndinni er fjölskyldan í Furulundinum.

Það má svo bæta við þeirri hugleiðingu hvort börn í dag tapa ekki öllum tengslum við sinn afmælisdag, þar sem sjaldnast er haldið upp á afmæli þeirra á réttum degi?







    3. sept. 2011

Möðruvallakirkja í Hörgárdal
  Við fórum í Möðruvallakirkju kl.13 í dag til að vera við skírn Patreks Páls. Hann fæddist þann 11. ágúst sl. og er fyrsta barn foreldra sinna: Katrínar Árnadóttur og Péturs Birgissonar. Með fæðingu sinni færði Patrekur Páll mér nýja virðulega nafnbót, það er að segja að nú get ég með sanni og sóma titlað mig sem langömmubróður. Það er ekki alveg laust við að mér finnist ég vera orðinn aðeins ráðsettari eftir en áður.  
  Eftir athöfnina í kirkjunni var svo boðið til flottrar skírnarveislu heima hjá nýbökuðum afa og ömmu í Möðrusíðu. Fallegur og hátíðlegur dagur, þrátt fyrir að úti væri súld og rigning.
  Við Sigrún óskum Patreki Páli innilega Guðs blessunar á lífsins leið. 
  Nokkrar myndir frá deginum má sjá hér. 

Tómas Leonard og amma Sigrún  Á eftir heimsóttum við svo mæðginin í Helgamagra. Þau voru á fullu við undirbúning að fjögurra ára afmæli Tómasar. Til að gefa mömmunni svolítið næði til að gera það sem hún var að gera, tókum við Tómas Leonard með okkur í bíltúr og fórum meðal annars með hann í heimsókn að leiði langömmu Guðlaugar og langafa Franz í kirkjugarðinum á Akureyri.
  Það er alltaf gaman að sjá hvað kirkjugarðurinn er einstaklega vel hirtur, forsvarsmenn og starfsfólk eiga þakkir skildar fyrir það.

      
    1. sept. 2011

Home

  Í dag var stjórnarfundur hjá SAH. Við vorum að ræða breyttar forsendur er varða afurðaverð til bænda, sem við ákváðum á stjórnarfundi þann 11. ágúst sl.
  Í gær og fyrradag hækkuðu bæði KS og SS sín afurðaverð til bænda frá áður út gefinni verðskrá. Í samræmi við stefnu SAH Afurða  um að vera samkeppnishæft við aðra sláturleyfishafa er varðar afurðaverð til bænda, ákváðum við á fundinum í dag að hækka verð SAH Afurða til samræmis við hina sláturleyfishafana.
  Nýja verðskrá SAH Afurða má sjá hér.
Flettingar í dag: 428
Gestir í dag: 78
Flettingar í gær: 716
Gestir í gær: 31
Samtals flettingar: 68297
Samtals gestir: 17462
Tölur uppfærðar: 14.5.2024 17:28:19
clockhere

Staðarbakki

Nafn:

Guðmundur Skúlason & Sigrún Franzdóttir

Farsími:

846 1589/615 1949

Afmælisdagur:

21. okt. og 6. febr.

Heimilisfang:

Staðarbakki

Staðsetning:

Hörgársveit

Heimasími:

462 6756

Um:

Við erum bændur á Staðarbakka og búum þar með sauðfé.

Kennitala:

211051-4509

Bankanúmer:

1187-26-10528

Tenglar