Velkomin á heimasíðu Guðmundar og Sigrúnar Staðarbakka Hörgársveit

Fréttir okt. 2007

    30. okt. 2007

Það fór að snjóa um hádegi í dag og snjóar enn núna þegar klukkan er  farin að nálgast miðnætti, þannig að það er kominn þó nokkur snjór og talsverðir skaflar hérna í kringum húsin, enda var nokkur vindur um tíma, en hann hefur nú lægt að mestu. Við smöluðum saman lömbum og hrútum og settum það inn í kvöld, en flestar ærnar eru úti.
Meðfylgjandi mynd tók ég núna áðan úr eldhúsglugganum.

Í kvöld kláruðum við að færa í Fjárvis og sendum til Bændasamtakanna, þannig að fjárbókhaldið ætti að geta farið að malla þar í gegnum uppgjörið.

    25. okt. 2007

Undanfarna daga höfum við verið að taka út úr fjárhúsunum með haugsugunni og kláruðum við það í dag. Þetta er bæði erfið og óþrifaleg vinna og svo þarf að þrífa allt með háþrýstidælu á eftir, bæði hús og tæki.  Það er mikið gott að þetta er búið. Við vorum reyndar nokkuð heppnir með veður, það var nokkuð hlýtt alla dagana sem er mesti munur því þetta er nánast óvinnandi í frosti.
Á myndinni má sjá þegar verið var að hræra upp í síðustu krónni.





    23. okt. 2007


Í morgun birtust þessir sjaldséðu gestir í blómagarðinum við íbúðarhúsið. Þessar tvær fallegu rjúpur spókuðu sig þarna í garðinum dá góða stund og virtust bara mjög spakar.










     16. okt. 2007

Gísli Garðarsson
Í dag fórum við Sigrún á Blönduós ásamt Gesti í Þríhyrningi.  Það var verið að slátra frá okkur 155 lömbum og 57 fullorðnum ám. Útkoman var eilítið lakari en úr fyrri slátrununum, en þó bara nokkuð góð. Meðalvigt var 16,2 kg. gerðarmatið 10,42 og fitumatið 7,33.
Á eftir fórum við í skoðunarferð fram í Svartárdal. Það hefur lengi staðið til, en ekki komist í verk fyrr en nú. Einkum langaði mig til að sjá Stafnsrétt, en hún er með stæstu fjárréttum á landinu.
Á myndinni er Gísli sláturhússtjóri SAH á skrifstofunni sinni.



   8. okt. 2007

  Ég fór á stjórnarfund í Sölufélagi Austur-Húnvetninga, sem haldinn var á Blönduósi í dag. Það var gaman að fara þangað í glampandi haustsólinni. 


      7. okt. 2007


  Í dag voru allar ærnar reknar inn út í Flögu og merkt við í fjárbókinni hverjar væru mættar og skoðað undir þær allar hvort væri í lagi með júgrin á þeim. Veturgamlar- og sláturær voru teknar úr og reknar hér heim, en hinar eiga að vera í Flögu, þar til farið verður að hýsa þær.


    5. okt. 2007

Mæðginin
  Þá er hann Tómas Leonard orðinn eins mánaðar. Hér er hann með henni móður sinni. Hann er pattaralegur drengur og dafnar vel, orðinn 4.045 gr að þyngd og 54 cm á lengd. Búið að togna úr þeim stutta um 6 cm. VÁ.
















Ólafur G, Rafn, Þórður og Sigmundur
  Í dag voru skoðaðir um 60 lambhrútar hér á bæ, þar af áttum við Sigrún 35. Ólafur G Vagnsson stigaði hrútana og Rafn Arnbjörnsson sá um ómskoðun. Allmargir bændur og áhuga menn um sauðfjárrækt komu til að fylgjast með og til að kaupa hrúta og voru nokkrir hrútar seldir í dag og búið er að biðja um nokkra til viðbótar. Útkoman úr skoðuninni var mjög góð. 
 
  Nú er blaðið yfir lambhrútaskoðunina komið hér inn á heimasíðuna, þannig að þeir sem hafa gaman og/eða áhuga fyrir að kynna sér það geta séð það undir: Sauðfjárbúskapurinn - Lambhrútaskoðun 2007



  Þetta er lambhrútur númer 678 sem stigaðist hæst , undan Krók 05-150 og Biðu 04-472. Hann vó 46 kg. Úr ómskoðun voru tölurnar 30 - 3 - 4+. Legglengd er 104 mm.  Og stigaðist þannig: 8,0-9,0-9,0-9,0-9,5-19-9-8-8- = 88,5 stig. Þessi stigun mun vera með því al hæsta sem þekkist hér á landi, þannig að þessi hrútur ætti að vera algjör gull moli. Þess má geta að hann er seint borinn, fæddur 4. júní.










Flettingar í dag: 453
Gestir í dag: 95
Flettingar í gær: 716
Gestir í gær: 31
Samtals flettingar: 68322
Samtals gestir: 17479
Tölur uppfærðar: 14.5.2024 20:07:45
clockhere

Staðarbakki

Nafn:

Guðmundur Skúlason & Sigrún Franzdóttir

Farsími:

846 1589/615 1949

Afmælisdagur:

21. okt. og 6. febr.

Heimilisfang:

Staðarbakki

Staðsetning:

Hörgársveit

Heimasími:

462 6756

Um:

Við erum bændur á Staðarbakka og búum þar með sauðfé.

Kennitala:

211051-4509

Bankanúmer:

1187-26-10528

Tenglar