Velkomin á heimasíðu Guðmundar og Sigrúnar Staðarbakka Hörgársveit

Fréttir ágúst 2012

    31. ágúst 2012

Áður en maður veit af er ágúst mánuður á enda runninn. Hann hefur verið ansi annasamur og því lítið verið sett hér inn á heimasíðuna. Ég ætla nú að spóla aðeins til baka og setja það helsta hér inn.
Byrja á þessum fallegu myndum frá einu góðviðriskvöldinu í ágúst sem við hjónakornin tókum, nánar til tekið þann 20. ágúst.

Þetta er mynd Sigrúnar. Á henni gnæfir Flöguselshnjúkur hæst og er Geldfjárskarð á milli hans og Flögukerlingarinnar

Þetta er svo myndin mín, tekin yfir norður enda Flögukerlingarinnar.

    30. ágúst 2012

  Það er kominn haustsvipur á náttúruna eins og sjá má á þessari mynd.
  Síðustu rúllurnar komust í plast í dag og er þá heyskap lokið á þessu sumri. Heyskapartíð hefur verið lengst af mjög góð, en þurrkar hafa hamlað sprettu nokkuð. Heyfengur er þó viðunandi og gæði heyanna með allra besta móti.









    26. ágúst 2012

  Þá eru hamarshöggin hljóðnuð, aðeins eftir smá frágangur og tiltekt. Þetta lítur bara vel út og ætti að standast þau stórviðri sem hér getur gert, einkum um og uppúr miðjum vetri.













    25. ágúst 2012

  Smiðirnir Stefán og Þorri komu í morgun að klára sitt verk og taka dótið sitt. Það er búið að vera frábært að hafa þá og sjá þessa tæplega 70 ára hlöðu breytast úr hálfgerðu hræi í ágætis hús. Við kunnum þeim smiðunum bestu þakkir fyrir gott starf og ágæta samveru þessa daga.
  Á myndinni er svo bóndinn einn eftir að huga að hvernig skuli loka gamla baggagatinu tryggilega.







    24. ágúst 2012

  Það er komið fram á kvöld og nú er þetta alveg að hafast.
















    23. ágúst 2012

  Í kvöld var hér fjallskilanefndarfundur. Við vorum að ganga frá álagningu fjallskila fyrir komandi haust.
  Myndin er frá 2011.














    22. ágúst. 2012

  Ég fór á stjórnarfund hjá SAH Afurðun á Blönduósi í dag. Við vorum að ákveða verðið fyrir sauðfjárafurðirnar í haust. 
  Hækkun fyrir dilkakjöt er 6 til 7% en verð fyrir kjöt af fullorðnu hækkar ekki.
  Meðfylgjandi mynd er úr myndasafni.
 Hér má sjá verðskrána 










    21. ágúst 2012

  Í dag var járnið sett á hlöðuna og gekk það ljómandi vel.
















    16. ágúst 2012

  Smiðirnir Stefán Lárus og Þorri komu í morgun og var þá hafist handa við að smíða sperrurnar og setja þær upp.















    8. ágúst 2012

  Í dag var hafist handa við að rífa ofan af gömlu hlöðunni, bæði járn og timbur.
  Þetta var nú alveg tímabær aðgerð því hlaðan er að nálgast sjötugt, byggð 1944.
Pabbi, sem byggði þessa hlöðu, sagði mér að þá hafi verið mjög erfitt að fá byggingar efni. Járnið sem fór þá á hlöðuna var því fyrst notað til að slá upp mótum til að steypa veggina og ekki var hægt að fá nokkurt nýtt timbur þannig að bæði sperrur og langbönd voru úr gömlu timbri. Það er því engin furða að þetta þak hafi verið  alveg á síðasta snúningi.
  Stefán Lárus var með okkur að rífa þakið í dag og svo ætla þeir smiðirnir hann og Þorri (Þorvar Þorsteinsson) að hjálpa okkur við endurbygginguna á þakinu og það á einnig að klæða suðurstafninn með bárujárni.

   4. ágúst 2012

Í Flöguhálsi  Í dag var ,,Sæludagur í sveitinni" þetta er hátíðisdagur, sem haldinn hefur verið hér í sveit á laugardeginum um verslunarmannahelgina um nokkurt árabil.
  Dagskráin verður sífellt fjölbreyttari, þannig að það eru viðburðir og uppákomur út um alla sveit, frá því fyrir hádegi og fram á nótt.
  Dagskráin hófst við Möðruvelli með keppni í sveitafitness þar sem bændur kepptu við vinnumenn. Traktoraspyrnan var á sínum stað. Dráttarvélarnar voru allar komnar af léttasta skeiði, flestar frá því fyrir 1970. Einnig var keppt í akstri sláttutraktora. Áætlað er að gestir við Möðruvelli hafi verið hátt í 800.
  Að dagskránni á Möðruvöllum lokinni var boðið upp á margvíslega viðburði víðsvegar um sveitarfélagið. Blómagarðar, smalahundar, fjórhjól og stangveiði var meðal þess sem boðið var upp á. Í Arnarnesi var handverks- og nytjamarkaður, og á Hjalteyri var mikil og fjölbreytileg dagskrá.  
  Meðal nýrra atriða nú í dagskráinni var söguganga upp að Geirufossi í Myrká, sem Leikfélag Hörgdæla stóð fyrir á slóðum skessunnar Geiru, sem fossinn dregur nafn sitt af . Í þessa göngu mættu um 170 manns. Meðfylgjandi mynd er frá upphafsstað göngunnar í Flöguhálsi. Að lokinni göngunni að fossinum var farið í Myrkárkirkjugarð, þar sem aðalsögusvið þjóðsögunnar um Djáknann á Myrká er.  
  Sæludeginum lauk með ekta sveitaballi á Melum.
  Alls er áætlað að gestir á viðburðum Sæludagsins hafi verið hátt á annað þúsund. 
  Hér má sjá myndir frá þeim atburðum sem við komumst yfir, en það var nú bara lítið brot af öllu því, sem í boði var.

 
Flettingar í dag: 402
Gestir í dag: 60
Flettingar í gær: 716
Gestir í gær: 31
Samtals flettingar: 68271
Samtals gestir: 17444
Tölur uppfærðar: 14.5.2024 13:42:09
clockhere

Staðarbakki

Nafn:

Guðmundur Skúlason & Sigrún Franzdóttir

Farsími:

846 1589/615 1949

Afmælisdagur:

21. okt. og 6. febr.

Heimilisfang:

Staðarbakki

Staðsetning:

Hörgársveit

Heimasími:

462 6756

Um:

Við erum bændur á Staðarbakka og búum þar með sauðfé.

Kennitala:

211051-4509

Bankanúmer:

1187-26-10528

Tenglar