Fréttir nóv. 2013
30. nóv. 2013
|
Halló, halló! Þá er stórastundin upp runnin. Í dag sótti ég Sigrúnu í Kristnes og nú er komið að því, að hún sofi heima, eina eða tvær nætur. (Svaf síðast heima aðfaranótt 28. mars) Ég er búinn að taka sófa og sófaborð úr stofunni og koma þar fyrir handa okkur nýju heilsurúmi og tjalda af hluta af stofunni. Það þurfti að gera þetta, vegna þess að hjónaherbergið okkar er á efri hæðinni og þangað kemst Sigrún ekki enn. Hún er samt orðin ótrúlega dugleg að bjarga sér t.d. getur hún orðið gengið ögn með smá aðstoð. Þetta er alveg ótrúlega gaman fyrir okkur bæði og þvílík upplifun eftir þessa löngu 8 mánuði. Eins og sjá má erum við alsæl í nýja rúminu okkar. Það er eins og sjálf jólin séu gengin í garð og fram undan sé heilög jólanótt. Þökk sé Guði fyrir batann og öllum sem hafa sent okkur góða strauma og fyrirbænir. |
7. nóv. 2013
Þá er rúningurinn að verða búinn að þessu sinni, klárast á morgun ef áætlanir ganga eftir. Að venju er það Gestur sem rýir og svo var Anton við að leggja ærnar í gær og dag. Þetta er með því allra fyrsta, ef þá rúningurinn hefur nokkurn tíman verið búinn svona snemma. Það er út af fyrir sig mjög gott að þetta erfiða verk er búið, en það er ekki eins gott að féð komi alltaf fyrr og fyrr inn á fulla gjöf. Það kostar sitt.
|
Flettingar í dag: 114 Gestir í dag: 60 Flettingar í gær: 403 Gestir í gær: 132 Samtals flettingar: 108224 Samtals gestir: 24359 Tölur uppfærðar: 21.11.2024 10:49:24
|