Velkomin á heimasíðu Guðmundar og Sigrúnar Staðarbakka Hörgársveit |
||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
Fréttir ágúst 2010 31. ágúst 2010 Í dag var gefin út ný verðskrá hjá SAH Afurðum ehf. í Blönduósi. Ég set hana hér inn ásamt skýringun Sigurðar Jóhannessonar framkvæmdastjóra á henni: "Ný verðskrá dilkakjöts
29. ágúst 2010 Höfuðdagur Við gerðumst menningarleg í okkur í dag og fórum í annað sinn á stuttum tíma í Menningarhúsið Hof á Akureyri. Að þessu sinni á tónleika hjá Sinfóníuhljómsveit Norðurlands og voru tónleikarnir liður í hátíðardagskrá í tilefni af opnun Hofs. Efnisskrá; Hafliði Hallgrímsson: HYMNOS, Edvard Grieg: Píanókonsert í amoll op. 16, Antonin Dvorák: Sinfónía nr. 9 Einleikari: Víkingur Heiðar Ólafsson, stjórnandi: Guðmundur Óli Gunnarsson. Það er skemmst frá að segja að þetta voru frábærir tónleikar og ungi einleikarinn Víkingur Heiðar Ólafsson alveg meiri háttar góður og hróður hans á eftir að berast um víða veröld á komandi árum. Salurinn nýi í Hofi "Hamraborg" stóð einnig alveg undir væntingum með hljómburð og að skila tónunum hreinum og tærum til tónleikagesta. 28. ágúst 2010 Það mátti sjá fyrstu haustmerkin í morgun þegar grátt var í efstu fjallatoppum, en trén í garðinum eru enn í fullum skrúða og ekkert farin að fölna. En núna kl. 22 er hitastigið komið niður í frostmark þannig að það stefnir í fyrstu frostnóttina. Einhvers staðar segir af rósinni sem fölnar öll á einni hélu nótt. 27. ágúst 2010 Tómas Leonard er hjá ömmu og afa í sveitinni þessa vikuna, meðan mamma hans er eð vinna í Menningarhúsinu Hofi, við sýningarstjórn á opnunarhátíð hússins nú um helgina. Einmitt núna þegar ég rita þetta eru opnunartónleikarnir "Lay Low og gestir" í beinni útsendingu á Rás 2. Þar leggur Lay Low áherslu á eyfirsk skáld og flytur gamlar perlur ásamt eyfirsku tónlistarfólki á öllum aldri. Á myndinni er Tómas með ömmu gellu og hundunum.... ....hann var líka að athuga hvort hann gæti ekki hjálpað afa að laga réttina. 24. ágúst 2010 Það styttist í haustið og þar með göngurnar. Fjallskilanefndin kom saman hér á Staðarbakka í kvöld til að leggja á fjáreigendur fjallskil haustsins og annað það, sem þarf að huga að í sambandi við göngur og réttir. Í síðustu viku fórum við fjallskilanefndarmennirnir, nema Jósavin, auk sveitarstjórans að hitta forsvarsmenn fjallskila í Akrahreppi í Héðinsminni, til að ræða sameiginleg fjallskil. Ekki tókst að ganga frá þeim málum á fundinum og er það því í skoðun áfram. Gott yfirlit yfir göngur og aðalréttir í Hörgársveit er að finna á heimasíðu sveitarfélagsins og það má nálgast hér 18. ágúst 2010 Nú þegar líður að hausti nálgast sá tími, sem allt er varðar sauðfjárræktina fer að verða áhugavert fyrir sauðfjárbóndann. Má þar nefna; göngur og alls konar fjárrag, sláturtíð og verðlag sláturafurða og kynbótamat og val ásetningslamba. Ég vil því vekja athygli á heimasíðu FSE, sem að mestu hefur legið í dvala frá því í vor, en hefur nú vaknað til lífsins aftur, þegar eitthvað markvert er farið að gerast fyrir okkur sauðfjárbændurna. Fréttir á heimasíðu FSE má nálast hér. 17. ágúst 2010 Hjalti fékk eins konar langt helgarfrí um helgina og þar til á morgun. Á myndinni eru þeir Tryggur að sækja póstinn. Annars var hann með sitt uppáhald, fiðluna með sér og spilaði á hana fyrir okkur. Í kvöld keyrðum við hann til Akureyrar og ætlar hann að gista í Helgamagra í nótt hjá Sólveigu og Tómasi Leonard. Hann fór fyrst með okkur í skemmtilega heimsókn í Kringlumýrina til Ásgerðar systur og Ólafs mágs. Í fyrramálið fer Hjalti svo til Hallormsstaðar til vinnu sinnar þar. 16. ágúst 2010 Fjallskilanefndin kom hér saman til fundar í kvöld ásamt sveitarstjóranum. Við vorum að fara yfir ýmis mál, en endanleg álagning fjallskila bíður næsta fundar, sem að óbreyttu verður í upphafi næstu viku. Þau hjónin hérna í norðurendanum og Hákon Þór, fóru í sumarhús suður á land dag. 14. ágúst 2010 Í dag var frændi minn Gunnar Andri Gunnarsson í Búðarnesi fermdur í Bægisárkirkju kl. 13:00. Að athöfn í kirkjunni lokinni bauð hann frændfólki og vinum til glæsilegrar og fjölmennrar matarveislu að Melum, sem að gömlum og góðum sveitasið endaði með kaffidrykkju og bakkelsi sem mamma hans Gunnars Andra hafði gert og skreytt af sinni alkunnu smekkvísi. Einnig mun hún hafa átt heiðurinn af látlausri og fallegri borðskreytingu, sem að mestu var heimafengin, þar sem uppistaðan voru blá- og hrútaber á greinum. Í veislunni var boðið upp á ýmis skemmtiatriði svo sem hljóðfæraleik, söng og upplestur bæði í lausu og bundnu máli. Við Sigrún þökkum þér frændi fyrir frábæran dag og óskum þér gæfu, gengis og Guðs handleiðslu nú þegar þú stendur á þröskuldi manndómsára þinna. Hér má sjá nokkrar myndir úr veislunni. Eftir fermingarveisluna brunuðum við til Akureyrar og skelltum okkur á Græna hattinn, þar sem Blúsmenn Andreu og að sjálfsögðu Andrea Gylfadóttir sjálf fóru hreint á kostum bæði í hljóðfæraleik og söng. Sem sagt mjög góð skemmtun. 13. ágúst 2010 Í dag fór ég á stjórnarfund hjá SAH á Blönduósi. Þar vorum við að fara yfir stöðu mála og ákveða verðskrá fyrir sauðfjárafurðir á komandi hausti. Afkomuhorfur fara batnandi, er það einkum að þakka lækkandi vaxtastigi í landinu og góðri sölu á erlenda markaði, en þar munar mestu um Noregsmarkað. Mjög erfitt hefur hins vegar verið að ná fram hækkunum innanlands, þannig að þær hafa nánast engar orðið frá því í fyrrahaust. Niðurstaða okkar varð því að hafa óbreytta verðskrá frá haustinu 2009, að frádregnum 39 kr. á kíló lambakjöts, sem er sú upphæð sem sláturleyfishafar hafa fengið í gegnum sauðfjársamninginn milli bænda og ríkisins til að mæta birgðahaldi, en afsöluðu sér því núna. Meiningin er að þessi upphæð verði greidd beint af Bændasamtökunum til bænda. Þessi verðákvörðun okkar er í samræmi við verðskrár annarra sláturleyfishafa, sem þegar hafa birt verð sín. Einnig sú þrepaskipting verðs sem við ákváðum, það er að hafa hæst verð í upphafi sláturtíðar, en það fari svo stig lækkand eftir því sem á hana líður. Hvað greiðslu fyrir afurðirnar varðar verða þær annars vegar með sama hætti og verið hefur síðustu haust, það er að greitt sé að fullu á föstudegi eftir innleggsviku, en einnig verður boðið uppá að greitt verði 75% á þessum tíma en 25% verði greidd 1. mars. Þeir bændur sem velja síðari kostinn fá álag ofan á verðskána á báðar greiðslurnar. Breyting verður á gjaldtöku fyrir slátrun til heimtöku. Nú verða innheimtar 2.500 kr. á skrokk hvort heldur hann er af dilk eða fullorðnu fyrir allt að 100 skrokka á býli. En óski menn eftir að taka fleiri skrokka út verður að semja um gjald fyrir þá sérstaklega. Áætlað er að hefja slátrun 6. september. Verðskráin fylgir svo hér: Í kvöld fórum við Sigrún svo til Akureyrar og í Menningarhúsið Hof. Þar hefur Bandalag Íslenskra leikfélaga verið með leiklistarhátíð þessa viku og boðið hefur verið uppá verk daglega bæði´með íslenskum og erlendum leikfélögum. Í kvöld var á "fjölunum" sýning Freyvangsleikhússins Vínland. Það er verið að prufukeyra húsið þessa dagana, en formleg vígsla þess verður þann 29. ágúst nk. 12. ágúst 2010 Í dag eru 13 ár síðan þeim Auði Maríu og Arnari Heimi fæddist frumburðurinn sinn, sem síðar það sama ár, á afmælisdag afa í sveitinni, hlaut nafnið Katrín Valdís. Já tíminn líður hratt, manni finnst varla nema örskotsstund síðan hún var lítið kríli í vöggu og er svo áður en maður veit af komin á fermingaraldur. Því miður höfum við í sveitinni lítið séð hana hin síðustu ár, þar sem hún flutti með fjölskyldunni til Danmerkur það herrans ár 2007. Við sendum þér Katrín Valdís okkar, innilegar afmæliskveðjur með ósk um að þú megir hér eftir sem hingað til njóta Guðs blessunar og handleiðslu um öll hin ókomnu ár. Myndina fengum við senda frá Danmörku og eins og sjá má er Katrín Valdís að máta sig á nýju vespuna hans pabba síns. 11. ágúst 2010 Heyönnum lokið Þá er heyskapnum lokið þetta sumarið, klárað var að rúlla í gær og að flytja rúllurnar í morgun. Heyfengur er í góðu meðallagi en gæðin í því tæpu, enda þrálátur óþurrkur framan af júlí, en það var sá tími sem best hefði hentað hér til heyskapar er varðar þroskastig túngrasanna. Að heyskap loknum var frábært að skella sér í sundlaugina á Þelamörk og njóta þar sólsetursins og veðurblíðunnar um leið og maður lét heyskaparþreytuna líða úr sér. 7. ágúst 2010 Um þessa helgi eru vatnagöngur Ferðafélagsins Hörgs. Í gærkveldi var gengið að Þverbrekkuvatni í Öxnadal, í dag var gengið að Grænavatni, sem er upp undir Flögukerlingu í Hörgárdal og á morgun á svo að ganga að Hraunsvatni í Vatnsdal. Við vorum 12 sem gengum að Grænavatni í dag í ljómandi gönguveðri, stillt var en sólarlaust. Gangan hófst við Ásgerðarstaðarsel um kl. 11 og stefnan var tekin að Grænavatni, eftir stutt stopp þar var svo gengið út Kerlingarhólana að Kirkjunni og svo um Flárnar og niður Flöguhálsinn allt að Geirafossi. Þetta var hressandi og góð gönguferð og allir sælir með hana að leiðarlokum. Þess má geta að þátttakendur voru á öllum aldri, allt frá 10 upp í 68 ára. Hér má sjá fleiri myndir af því sem fyrir augu bar. Þegar við komum til byggða hittum við þennan hressa hóp, sem var að koma frá því að klífa Drangann og voru þau ekki síður alsæl með daginn en við. Leiðangursstjóri var Jón Gauti fjallaleiðsögumaður. Ef vel er rýnt í myndina má sjá þar í hópnum landsþekkt andlit. 5. ágúst 2010 Fyrstu hánni var komið í plast í dag, en hún var slegin í fyrradag og var orðin ágætlega sprottin. . 4. ágúst 2010 Við brugðum okkur í Dalvíkurbyggð í dag. Skoðuðum Svarfaðardal og Skíðadal, fórum inn að innstu bæjum í báðum dölunum. Það er búsældarlegt í þessum dölum, en það vekur þó athygli hvað á mörgum býlum er ekkir lengur stundaður búskapur. Það munar þó miklu fyrir ásýnd sveitarinnar, að á flestum eyðibýlanna eru tún slegin af bændum í sveitinni. Fátt er ömurlegra en að ferðast um sveitir, þegar komið er fram í ágúst, en að sjá óslegin tún, sums staðar á mörgum bæjum og allt annað í niðurníðslu. Það hafa ýmsir talað óspart um rofabörðin í íslenskri náttúru, sem sannarlega er nokkuð til að hafa áhyggjur af. En "rofabörð" í hinni íslensku byggð er eitthvað, sem flestir virðast taka sem sjálfsögðum hlut. En þetta eru náskyld fyrirbæri, hvoru tveggja ber hættu í för með sér fyrir nágrenni sitt. Við litum aðeins við hjá Gesti, sem er þessa dagana að leysa af í fjósinu á Búrfelli. Á heimleiðinni litum við svo aðeins við á Dalvík. Þar var að verða þröng á þingi og bærinn að fyllast af flestum tegundum þeirra "skuldahala" sem fólk dregur með sér um þjóðvegi landsins nú um stundir. Eins og sjá má á myndinni er tjaldstæðið orðið fullt og svo var raunar út um allan bæ, þar sem mátti finna auðan blett til að staðsetja sig á. Það er þó ekki nema miðvikudagur og "Fiskidagurinn mikli" ekki fyrr en á laugardag. Hvernig ætli að þetta verði eiginlega orðið þá? 1. ágúst 2010 Við héldum okkur á heimaslóðum í dag þrátt fyrir að ýmislegt væri í boði til afþreyingar nærsveitis t.d. á Akureyri. Það þarf nú ekki að fara langt til að njóta lífsins og undrafegurðar náttúrunnar, hægt að gera það innan landareignarinnar. Í því skyni lögðum við hjónin, Sólveig og Tómas Leonard leið okkar að Básfossi, sem er neðsti fossinn í Hörgá, kenndur við eyðibýlið Bás, sem er þar skammt frá austan árinnar. Á eftir fórum við svo aðeins í berjamó í skógræktargirðingunni okkar í Flöguhálsi. Þar er mikið um ber og bláberin orðin vel þroskuð þrátt fyrir að aðeins sé kominn 1. ágúst. Myndavélin var að sjálfsögðu með í för. Má ekki bjóða þér að njóta þess sem fyrir augu bar hér. Og svo er bara að skella sér í tjaldið og hlusta á "Brekkusöng" undir stjórn Árna Johnsen frá Vestmannaeyjum. Nokkrar myndir hér. Flettingar í dag: 37 Gestir í dag: 10 Flettingar í gær: 403 Gestir í gær: 132 Samtals flettingar: 108147 Samtals gestir: 24309 Tölur uppfærðar: 21.11.2024 10:28:21 |
clockhere Staðarbakki Nafn: Guðmundur Skúlason & Sigrún FranzdóttirFarsími: 846 1589/615 1949Tölvupóstfang: drangi@simnet.isAfmælisdagur: 21. okt. og 6. febr.Heimilisfang: StaðarbakkiStaðsetning: HörgársveitHeimasími: 462 6756Um: Við erum bændur á Staðarbakka og búum þar með sauðfé.Bankanúmer: 1187-26-10528Tenglar
|
© 2024 123.is | Nýskrá 123.is síðu | Stjórnkerfi 123.is